Stefna 19. apríl 2005.

Aftur á efnisyfirlit hér

Nr. 1. Lagt fram í Héraðsdómi
Reykjavíkur, 19. apríl 2005


S T E F N A

Guðrún Kjarval
kt. 190117-2869
Krugervej 64,
Sejs 8600
Danmörku og

Mette Stiil
Strandvejen 17,
Tranum 9460,
Brovst
Danmörku

Gjöra kunnugt:

Að þær þurfi fyrir hönd dánarbús Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals, kt. 150985-9908, með lögheimili síðast að Lindargötu 7 Reykjavík, að höfða mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur:

Reykjavíkurborg, kt. 530269-7609, Ráðhúsinu, Reykjavík.

Dómkröfur:

1. Viðurkenningarkrafa:

Stefnandi, dánarbú Jóhannesar Sveinssonar Kjarval, krefst þess að viðurkenndur verði með dómi eignaréttur dánarbúsins á eftirtöldum munum sem fluttir voru úr vinnustofu hins látna að Sigtúni 7, Reykjavík í október, nóvember og desember 1968 og eru í vörslum stefndu, Reykjavíkurborgar, samkvæmt dómskjölum nr. 3, 4, 5 og 6 sem hér segir:

a) Listaverk eftir Jóhannes S. Kjarval upptalin og merkt K-0001-5301 í dómskjali nr. 3.
b) Listaverk eftir aðra listamenn en Jóhannes S. Kjarval upptalin og merkt LR-1696-1718 í dómskjali nr. 4.
c) Ýmsir munir upptaldir og merktir K-001- 347 í dómskjali nr. 5.
d) Bækur upptaldar í dómskjali nr. 6.

2. Afhendingarkrafa-dagsektir.

Stefnandi, dánarbú Jóhannesar Sveinssonar Kjarval, krefst þess að stefnda, Reykjavíkurborg, verði dæmd til að afhenda stefnanda eftirtalda muni sem fluttir voru úr vinnustofu hins látna að Sigtúni 7, Reykjavík í október, nóvember og desember 1968 og eru í vörslum stefndu, Reykjavíkurborgar, samkvæmt dómskjölum nr. 3, 4, 5 og 6 sem hér segir:

a) Listaverk eftir Jóhannes S. Kjarval upptalin og merkt K-0001-5301 dómskjali nr. 3.
b) Listaverk eftir aðra listamenn en Jóhannes S. Kjarval upptalin og merkt LR-1696-1718 í dómskjali nr. 4.
c) Ýmsir munir upptaldir og merktir K-001- 347 í dómskjali nr. 5.
d) Bækur upptaldar í dómskjali nr. 6.
Þess er krafist að stefnda, Reykjavíkurborg, verði dæmd til að greiða dagsektir kr. 200.000,00 fyrir hvern dag hafi afhending tilgreindra muna til stefnanda ekki farið fram innan 15 daga frá dómsuppsögu.

3. Málskostnaðarkrafa.

Stefnandi krefst málskostnaðar úr hendi stefndu að skaðlausu að teknu tillliti til 24,5% virðisaukaskatts samkvæmt málskostnaðarreikningi sem lagður verður fram við aðalmeðferð máls þessa.

Fyrirsvar:

Undirritaður lögmaður, Kristinn Bjarnason hrl., kt. 240364-2209, Lágmúla 7, Reykjavík fer með mál þetta fyrir hönd stefnanda.

Málsástæður og önnur atvik:

1. Grundvöllur máls – aðild.

Málavextir eru þeir að Jóhannes Sveinsson Kjarval listmálari, sem fæddur var þann 15. september 1885, lést þann 13. apríl 1972. Lögerfingjar hans voru börn hins látna og Tove Merild sem hann kvæntist árið 1915, Aase fædd árið 1917 og Svein fæddur árið 1919. Jóhannes S. Kjarval og Tove Merild slitu samvistum árið 1924 en þá flutti hún ásamt börnum þeirra til Danmerkur.

Þann 18.apríl 1972 óskuðu Sveinn Kjarval og Aase Kjarval Lökken eftir leyfi sýslumannsins í Reykjavík til einkaskipta á dánarbúi Jóhannesar Kjarvals og var einkaskiptaleyfi veitt sama dag. Á þessum tíma og meðan einkaskipti stóðu voru báðir tilgreindir erfingjar hins látna búsettir í Danmörku.

Einkaskiptum var lokið með því að erfðafjárskýrslu dags. 1. apríl 1973 undirritaðri í Brökhus í Danmörku, var skilað til sýslumannsins í Reykjavík og erfðafjárskattur greiddur þann 16. apríl 1973.

Samkvæmt erfðafjárskýrslunni voru til skipta eignir samtals að verðmæti gkr. 1.415.000,00 og samanstóðu þær af eftirfarandi:

1. Peningaeign gkr. 1.390.000,00
2. Teikningum á veggjum í herbergi í Austurstræti 10a, gkr. 25.000,00

Til frádráttar kom kostnaður að fjárhæð gkr. 60.000,00 og var því hrein eign til skipta gkr. 1.355.000,00.

Aase Kjarval Lökken og Svein Kjarval eru bæði látin.
Aase Kjarval Lökken eignaðist eina dóttur,Mette Stiil, og var hún einkaerfingi hennar.
Eftirlifandi eiginkona Sveins Kjarval er Guðrún Kjarval og situr hún í óskiptu búi þeirra.

Með bréfi til sýslumannsins í Reykjavík dags. 19. nóvember 2003 óskaði undirritaður lögmaður fyrir hönd Mette Stiil og Guðrúnar Kjarval, eftir að einkaskipti á dánarbúi Jóhannesar Sveinssonar Kjarval yrðu endurupptekin á þeim grundvellii að ekki hefðu komið fram allar eignir sem hefðu átt að koma til álita við skiptin í öndverðu sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 20/1991.

Annars vegar var haldið fram að munir sem teknir voru úr vinnustofu Jóhannesar S.Kjarvals að Sigtúni 7, Reykjavík haustið 1968 og komust í vörslur Reykjavíkurborgar væru eign dánarbúsins og hefðu átt að koma til álita við skiptin.
Ágreiningur er um eignarétt að þessum munum og er mál þetta höfðað vegna þess ágreinings.

Hins vegar var haldið fram að renningur með 10 kolateikningum eftir Jóhannes S. Kjarval sem fannst í Stýrimannaskólanum árið 1994 væri í eigu dánarbúsins. Ekki er kunnugt um að ágreiningur sé um það eignarhald og eru þessi verk í vörslum afkomenda listamannsins.
Með bréfi dags. 6. febrúar 2004 féllst sýslumaðurinn í Reykjavík á endurupptöku einkaskipta á dánarbúi Jóhannesar S. Kjarvals á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 20/1991 sbr. 155. gr. laganna. Skiptin fara fram á forræði og ábyrgð þeirra aðila sem koma í stað látinna frumerfingja sem voru eins og áður greinir börn hins látna.

Með bréfi lögmanns stefnanda dags. 20. júní 2004 til Reykjavíkurborgar var sett fram krafa til borgarinnar um að hún afhenti öll myndverk og aðra muni sem teknir voru úr vinnustofunni að Sigtúni 7, Reykjavík síðari hluta ársins 1968. Jafnframt var óskað eftir því að ef fallist yrði á afhendingu að þá yrði gert samkomulag með aðilum um það með hvaða hætti afhending færi fram og eftir atvikum öðrum tengdum álitaefnum yrði lokið.

Þá var sérstaklega óskað eftir að látið yrði í té yfirlit um listaverk og aðra muni í vörslum Reykjavíkurborgar sem stöfuðu frá Jóhannesi S. Kjarval þar sem fram kæmi hvaða munir hefðu komið úr vinnustofunni að Sigtúni 7 í október til desember 1968.

Með bréfi borgarlögmanns dags. 8. júlí 2004 á dómsskjali nr. 10 var erindi stefnanda svarað en þar segir:

“Til svars erindi yðar er rétt að taka fram, að hinn 7. nóvember 1968 gaf Jóhannes Sveinsson Kjarval Reykjavíkurborg, myndverk og aðra muni sem hér um ræðir með munnlegri gjafayfirlýsingu. Hafði yfirlýsingin þá réttarverkun í för með sér, að eignarréttindi yfir umræddum verkum og munum færðust frá listamanninum til Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg er þar af leiðandi lögmætur eigandi umræddra verka og muna.

Að teknu tillliti til ótvíræðs eignarréttar Reykjavíkurborgar yfir þeim verkum og munum sem Jóhannes Sveinsson Kjarval færði henni að gjöf árið 1968 er kröfu umbj. yðar um afhendingu þeirra hafnað.”

Með svari þessu sem beint er að dánarbúi Jóhannesar S. Kjarval, liggur skýrlega fyrir að Reykjavíkurborg byggir einvörðungu á því að eignarréttur tilgreindra muna hafi færst til hennar á grundvelli meintrar gjafayfirlýsingar.

Mál þetta hlýtur því að snúast um það hvor aðila hafi sönnunarbyrði um að slík yfirlýsing hafi verið látin í té, hvort lögfull um hafi tekist um að hún hafi verið gefin og þá hvert efni hennar hafi verið.

Þar sem umbeðin skrá fylgdi ekki með tilgreindu bréfi borgarlögmanns var beiðni um afhendingu ítrekuð með bréfi dags. 16. júlí 2004.

Með bréfi borgarlögmanns dags. 1. september 2004 fylgdi skrá Listasafns Reykjavíkur um muni Jóhannesar S. Kjarval sem voru að Sigtúni 7, Reykjavík. Skrár þessar eru lagðar fram í máli þessu í dómskjölum nr. 3, 4, 5 og 6 og flokkaðar með sama hætti og gert er í bréfi forstöðumanns Listasafns Reykjavíkur dags. 26. ágúst 2004 á dómskjali nr. 7, undir liðum merktum a)-d).

Í máli þessu er af hálfu þeirra sem standa nú til arfs eftir Jóhannes S. Kjarval leitað dóms um viðurkenningu eignarréttar dánarbús Jóhannesar S. Kjarvals listmálara á listaverkum og öðrum munum sem komust í vörslur stefndu, Reykjavíkurborgar, í haustið 1968 nánar tiltekið október, nóvember og desember það ár, er þeir voru fluttir úr vinnustofu listamannsins að Sigtúni 7, Reykjavík.
Jafnframt er þess krafist að munir þessir verði að viðlögðum dagsektum afhentir dánarbúinu þannig að þeir geti komið til arfskipta enda hljóti stefnda að viðurkenndum eignarrétti að vera skylt að afhenda dánarbúinu munina þar sem vörslurnar byggi ekki á heimild eiganda.

Af hálfu stefndu, Reykjavíkurborgar, er haldið fram eins og áður greinir að borgin sé lögmætur eigandi umræddra muna og því sé óskylt að afhenda muni þessa.

Mál þetta er höfðað til þess að fá endanlega skorið úr ágreiningi aðila og til þess að munir þeir sem krafist er afhendingar komi til arfskipta lögum samkvæmt.

Viðurkenningar- og afhendingarkrafa máls þessa lýtur að þúsundum einstakra muna. Framsetning krafna þar sem vísað er til upptalningar í framlögðum dómsskjölum er til hagræðis og styðst við að tilgreind dómsskjöl nr. 3-6 stafa frá stefnda.

Tekið skal fram að stefnandi áskilur sér rétt til að framhaldsstefna eða höfða nýtt mál komi í ljós að talning muna í dómsskjölum nr. 3-6 sé ekki tæmandi talning þess sem stefnda tók í vörslur sínar í október, nóvember og desember 1968.
Þá áskilur stefnandi sér rétt til að krefja Reykjavíkurborg um skaðabætur í sérstöku máli verði fallist á kröfur dánarbúsins í þessu máli.

2. Eignarréttur listaverka og annarra muna sem voru fluttar úr vinnustofu Jóhannesar S. Kjarvals haustið 1968.

Af hálfu stefnanda verða hér rakin helstu atvik og skjöl sem snúa að meginágreiningsefnum aðila. Þar sem langt er um liðið frá því atvik gerðust telur stefnandi að rekja málavexti og skjöl allítarlega.

Jóhannes S. Kjarval listmálari bjó um margra ára skeið og hafði vinnustofu að Sigtúni 7, Reykjavík.en hús þetta var í daglegu tali nefnt Breiðfjörðsblikksmiðja.

Á þessum stað lauk listamaðurinn löngum og afkastamiklum ferli sínum.

Á árunum 1966/67 flutti Jóhannes S. Kjarval úr Sigtúni 7, Reykjavík á Hótel Borg, þar sem hann hafði herbergi til afnota.
Á þeim tíma var heilsa hans farin að bila og nokkuð um að menn notfærðu sér einsemd hans til að slá hann um fé og fjármuni sbr. umfjöllun í minnisblaði á dómskjali nr. 24.

Í síðara bindi ævisögu Kjarval sem Indriði G. Þorsteinsson skráði segir á bls. 311-312 þar verið er að fjalla um síðustu æviár segir:

“Kjarval hafði lengi átt bágt með svefn og nú sótti þessi krankleiki meira á hann eftir að þrekið tók að bila og aldursjúkdómar sóttu að honum. Á þessum erfiðleikatímum flutti hann inn á Hótel Borg.”

Um heilsufar Kjarvals á þessum tíma má að nokkru vísa til bréfs Hannesar Péturssonar geðlæknis dags. 14. júní 1985 en þar kemur fram að listamaðurinn hafi verið er til umönnunar á geðdeild Borgarspítalans frá 18. febrúar 1969 til dánardægurs en Kjarval lagðist inn á Landspítalann þann 28. janúar 1968 og var fluttur þaðan yfir á Borgarspítalann.

Í bréfinu læknisins sem er á dómsskjali nr. 28 segir:

“Jóhannes Sveinsson Kjarval vistaðist á geðdeild Borgarspítalans í Reykjavík frá 18.02.1969 og lést þar 13.04.1972. Ástæða vistunar var almennur ellihrumleiki, sem fór versnandi smám saman fram að andláti.”

Áskilinn er réttur að leggja fram frekari gögn um heilsufar hins látna á því tímabili sem máli skiptir gefi varnir stefndu tilefni til þess.

Síðari hluta árs 1968 á 83 aldursári Jóhannesar S. Kjarvals var farið í að rýma vinnustofu hans að Sigtúni 7 en eigandi húsnæðisins þurfti að nýta það í eigin þágu.

Af gögnum má ráða að hafist hafi verið handa við að pakka niður munum sem þar voru í síðari hluta októbermánaðar 1968 og við það verk hafi Jóhannes S. Kjarval notið aðstoðar ýmissa manna aðallega Alfreðs Guðmundssonar sem síðar varð forstöðumaður Kjarvalsstaðar og fjölskyldu hans og að einhverju leyti Ólafs Þórðarsonar systursonar síns auk bílstjóra sem fengnir voru til að keyra munum frá Sigtúni.

Munir þessir voru annars vegar á vinnustofunni sjálfri og hins vegar á geymslulofti fyrir ofan hana.

Mestur hluti þess sem tekið var úr vinnustofunnni að Sigtúni 7 fór til Borgarskjalasafns Reykjavíkur. Eftir að Jóhannes S. Kjarval kominn á sjúkrahús í ársbyrjun 1969 mun Sveinn Kjarval með hjálp dóttur sinnar; Maríu, pakkað því niður sem þá var eftir á vinnustofunni og komið í geymslu í bátaskýli við“Kjarvalshús” á Seltjarnarnesi.

Sá hluti er fór til Borgarskjalasafns er nú í vörslum Listasafns Reykjavíkur og Kjarvalsstaða en þeir munir fóru í “Kjarvalshús” eru til geymslu í JL húsinu við Hringbraut í Reykjavík en þangað var mununum komið af barnabörnum listamannsins sem búa hér á landi.

Á þeim tíma sem munir listamannsins voru fluttir úr Sigtúni 7 var hvorugt barna Jóhannesar S. Kjarval á Íslandi.

Eins og áður greinir fluttu þau með móður sinni til Danmerkur árið 1924 og bjó Aase þar til dánardægurs.

Sveinn Kjarval flutti að nýju til Íslands árið 1939 og kvæntist Guðrúnu Hjörvar Kjarval ári síðar. Bjuggu þau í Íslandi með stuttu hléi vegna náms Sveins í Danmörku á fimmta áratugnum, fram til febrúar 1970 þegar þau fluttu búferlum til Danmerkur.

Atvik voru þau að hann dvaldist hjá Aase systur sinni í Danmörku, október, nóvember og fram í desember 1968 til þess að leitast við að ná heilsu en hann hafði þá átt við veikindi að stríða um nokkurt skeið.

Eiginkona Sveins, Guðrún Kjarval, var hins vegar Íslandi þessa haustmánuði 1968. Um aðstæður hennar og fjölskyldunnar má visa til frásagnar sem skráð var eftir Guðrúnu þann 22. september 2003 á dómskjali nr. 41.


Ekki var haft samráð eða samband við niðja Jóhannesar S. Kjarvals eða fjölskyldur þeirra vegna rýmingar vinnustofunnar að Sigtúni 7 haustið 1968.

Um þetta má vísa til bréfs Ólafs Þórðarsonar systursonar Jóhannesar S. Kjarvals sem hann sendi Sveini Kjarval dags. 10. nóvember 1968 dómsskjali nr. 18 segir í upphafi:

“Ég held það hafi verið á þriðjud. 5/10 sem Guðrún hringdi til mín og sagði mér að pabbi þinn mundi vera að búa sig undir að hreyfa eitthvað við sínum hlutum á vinnustofunni og sagði að þú hefðir stungið uppá því að ég liti til gamla mannsins sem mér var kært-enda þótt ekkert sé hægt að ráða við hann þegar hann tekur sitt strik. Ég var á skrifstofunni á Rl. og af því það voru mánaðarmót og ég hafði ekki lokið uppgjöri-því venjulega-og Guðrún sagði að það hastaði ekki, þá fór ég ekki fyrr en miðv.d. þann 6/10 í bæinn.”

Ljóst virðist af minnisbókum sem Ólafur hélt að þeir dagar sem vísað er til í bréfinu eru í nóvember en ekki október enda er það í samræmi við önnur gögn en það sem ritað er í reiti dagana 6. og 7. nóvember 1968 er í samræmi við efni bréfsins sbr. ljósrit úr minnisbókinni á dómskjal nr. 19.

Tilgreind minnisbók Ólafs Þórðarsonar var afhent undirrituðum lögmanni af syni hans, Jóni Þórði Ólafssyni og verður frumriti hennar framvísað í dómi verði þess krafist af stefnda.

Í bréfinu segir síðar þegar lýst er atburðum þann 6. nóvember 1968:

“Áður en við fórum af vinnustofunni spurði Kj. mig hvernig mér litist á að biðja borgarsafnið að geyma dótið-ég hugsaði mig um-leit á hann og reyndi að reikna hann út – og sagði: Því ekki sortera í nýjar umbúðir og láta allt vestur í nýja húsið á einn stað þar og taka svo upp seinna – nei nei – ég þoli það ekki sagði hann. Ég sagði þá – ef þú ert ánægður með það- þá sagðist ég ekki sjá neitt á móti því - og kannski það besta við nánari athugun. Ég sá að það þýddi ekki að reyna aðra úrlausn, og hann það þreyttur og slappur að það mundi draga hann ennþá neðar að ætlast til þess að hann færi í gegnum þetta – hann hefur ekki þrótt til þess – og hvert smástykki vekur nýjar endurminningar – e.t.v. óupptekin bók eða vindlakassi frá látnum vini. Jólakaka, jólapappír etc.”

Í niðurlagi bréfsins segir:

“Og hvað þig snertir þá álít ég að þú eigir að taka þessu öllu með knúsandi ró – og mátt vera þakklátur að þurfa ekki að standa í því taugastríði að vera í þessu umróti.”

Ólafur Þórðarson var sá eini sem tengdist fjölskyldu Jóhannesar S. Kjarvals sem hafði bein samskipti við hann vegna rýmingar vinnustofunnar í Sigtúni haustið 1968.

Af bréfi Ólafs Þórðarsonar má glögglega ráða að hann taldi að Reykjavíkurborg væri einungis að taka muni þessa til geymslu í því skyni að þeir færu ekki forgörðum og vísað til samtals við Kjarval þar að lútandi. Hefur þessi afstaða hans og fengist staðfest í samtölum undirritaðs við son Ólafs, Jón Þórð Ólafsson.

Þá kemur skýrlega fram í bréfi Ólafs til Aase dóttur listamannsins dags. 11. nóvember 1971 að hann telji að munirnir hafi verið afhentir til geymslu og varðveislu sbr. dómskjal nr. 21.


Samkvæmt bréfi Steinunnar Bjarmann listfræðings til Kjarvals dags. 10. janúar 1969 á dómskjali nr. 16, fól Lárus Blöndal þáverandi borgarskjalavörður henni að fara í gegnum og flokka muni þá sem höfðu borist úr vinnustofu Kjarvals síðustu mánuði ársins 1968:

Í bréfi Steinunnar segir:

“Í nóvember s.l. fól Lárus Blöndal borgarskjalavörður mér að fara í gegnum og flokka muni, sem bárust safninu frá yður um þær mundir. Verki þessu var hagað þannig, að tekið var úr öllum kössum, sem dótið barst í og það ryksugað, þurrkað, þvegið eða hreinsað, allt eftir því sem við átti. Dótið var síðan flokkað niður, skrásett og raðað í kassa. Kassarnir voru merktir og límdir aftur, bundið fyrir þá og þeir innsiglaðir.
Auk mín hafa aðeins tvær hreingerningakonur farið í gegnum þetta dót og höfum við allar reynt að fara eins gætilega með það og okkur var unnt og forðast að hnýsast í sendibréf eða annað. Þessu verki er nú lokið og sendi ég yður afrit af skrá þeirri, er ég gerði er ég gekk frá dótinu. Ég vona að þér við lestur þessarar skrár komist að raun um að öllu hefir verið til skila haldið eftir því sem unnt var.”

Skrá sú sem vísað er til í bréfinu á dómskjali nr. 17. Kemur þar fram á fyrstu síðu að heildarfjöldi þeirra kassa sem innsiglaðir voru, eru 153, þar á meðal 14 kassar með skissum og 56 kassar með myndum og málverkum.

Í skránni er listað upp í aðalatriðum hvaða munir voru settir í hvern kassa. Skrá þessi hefur svohljóðandi yfirskrift:

“Skrá yfir muni Jóhannesar S. Kjarvals í Borgarskjalasafni.”

Fram kemur í skýrslu Steinunnar Bjarmann dags. 12. mars 1987 á dómskjali nr. 30 að Jóhannes S. Kjarval hafi tekið við framangreindu bréfi og skrá úr hendi Steinunnar þann 17. janúar 1969.

Ekki verður séð að efni bréfs Steinunnar Bjarmann til Jóhannesar S. Kjarvals beri með sér að því sé beint að manni sem gefið hefur þá muni sem þar eru til umfjöllunar heldur þvert á móti.
Þá er beinlínis talað um muni Jóhannesar S. Kjarvals í Borgarskjalasafni í skrá þeirri sem hún vann.

Svo sem fram kemur í bréfi Steinunnar Bjarmann voru kassar þeir sem hún raðaði munum Kjarvals í innsiglaðir eins og um tryggilega geymslu ætti að vera að ræða.

Hvergi er í þessum gögnum minnst á að um gjöf sé að ræða.

Tilgreint bréf og skrá Steinunnar eru einu samtímaskjölin er stafa frá Reykjavíkurborg varðandi muni þá sem teknir voru af vinnustofunni Sigtúni 7. Þetta eru jafnframt einu skjölin sem stafa frá Reykjavíkurborg sem beint var að listamanninum eftir að tilgreinir munir voru komnir í vörslur Reykjavíkurborgar.

Í minnisblaði Baldurs Guðlaugssonar hrl. dags. 21. september 1982 á dómsskjali nr. 27 sem var fenginn til að vinna fyrir erfingja Jóhannesar S. Kjarvals og Sveins Kjarvals, hefur lögmaðurinn eftir Guðrúnu Kjarval að hún hafi hringt í Geir Hallgrímsson þáverandi borgarstjóra eftir að hafa fregnað að verið væri að flytja muni Kjarvals í Borgarskjalasafnið og hafi komið fram hjá Geir að verið væri að taka munina í varðveislu.
Ljóst sýnist að þetta samtal hafi átt sér stað í nóvember 1968 skömmu eftir að Guðrún hafði fengið fregnir af flutningum.


Fyrir liggur að stefnda, Reykjavíkurborg, hefur ekki gjafabréf eða önnur skilríki fyrir meintum eignarétti á þeim munum sem borgin fékk vörslur á haustið 1968 og voru upphaflega fluttir í Borgarskjalasafn Reykjavíkur.

Ekkert var bókað um meinta gjöf Jóhannesar S. Kjarvals í fundargerðum borgarstjórnar eða borgarráðs eða hún með neinum hætti skráð sem eign borgarinnar.

Í Morgunblaðinu þann 2. nóvember 1971 dómskjal nr. 20 var umfjöllun um að Reykjavíkurborg hafi fengið gjöf frá Jóhannesi S. Kjarval en þar segir í upphafi:

“Jóhannes S. Kjarval, listmálari, hefur gefið Reykjavíkurborg stórt safn teikninga. Páll Líndal borgarlögmaður, tjáði Mbl. í gær að að ekki lægi fyrir hversu mikið þetta safn væri að vöxtum en unnið er nú að röðun teikninganna og fleira í sambandi við þær.”

Í greininni er ekki tekið fram hvenær umtöluð gjöf var gefin. Í Morgunblaðinu 3. nóvember 1971 birtust myndir af þremur verkum Kjarvals og sagt að myndirnar hafi Kjarval gefið borginni haustið 1968.

Ekki er ljóst um tildrög þessarar umfjöllunar á þessu tímamarki en af upplýsingum um heilsufar Jóhannesar S. Kjarvals á þessum tíma má ljóst vera hann gat ekki gert sér grein fyrir þýðingu hennar hafi hún yfirleitt borist honum.

Engin gögn hafa komið fram á tímabilinu 1968 til 1982 þar sem fram koma staðhæfingar af hálfu Reykjavíkurborgar eða fyrirsvarsmanna hennar um það með hvaða hætti gjafayfirlýsing var gefin. Þannig lá á þessu tímabili ekki ljóst fyrir hvort Reykjavíkurborg hefði í fórum sínum gjafabréf sem stafaði frá Jóhannesi S. Kjarval.

Af framlögðum gögnum má ráða að niðjar Jóhannesar S. Kjarvals töldu fljótlega eftir að einkaskiptum á dánarbúi Jóhannesar S. Kjarval lauk árið 1973 að Reykjavíkurborg væri ekki lögmætur eigandi þeirra muna sem komust í vörslur borgarinnar haustið 1968.

Um það efni má vísa til þess að Sveinn Kjarval boðaði haustið 1975 til opinbers blaðamannafundar þar sem hann lét þessa skoðun sína í ljós.

Um þetta má einnig visa til bréfs Sveins Kjarvals til sonar síns Jóhannesar dags. 28. desember 1976 og umboðs dagsett sama dag sbr. dómsskjal nr. 22.

Á næstu arum leitaði Sveinn til að minnsta kosti tveggja lögmanna vegna þessara mála.

Þann 7. janúar 1981 undirritaði Aase. Kjarval Lökken systir Sveins umboð til hans þar sem hún veitti honum heimild til þess að koma fram fyrir sína hönd varðandi arfsmálefni eftir föður sinn sbr. dómskjal nr. 23. Sveinn Kjarval lést í febrúar 1981 og auðnaðist því ekki aldur til þess að leita leiðréttingar mála gagnvart Reykjavíkurborg.

Af þessu má ráða að niðjar Kjarvals voru alls ekki sáttir við fullyrðingar Reykjavíkurborgar um að Kjarval hafi gefið borginni þá muni sem fóru í vörslur hennar haustið 1968.
Hefur það enn frekar staðfests í samtölum við afkomendur barna Kjarvals að mál þetta lagðist mjög þungt á bæði Svein og Aase og að þau hafi talið sig órétti beitt.

Eftir fráfall Sveins, með atbeina Guðmundar Axelssonar listverkasala í Klausturhólum, var Baldur Guðlaugsson lögmaður fenginn til þess að kanna réttarstöðu erfingja Jóhannesar S. Kjarvals og Sveins Kjarvals varðandi umrædda muni sem voru í vörslum Reykjavíkurborgar.

Vegna sjónarmiða sem virðast hafa komið fram við þessa athugun lögmannsins og bárust til Reykjavíkurborgar, var haldinn fundur um málið á skrifstofu borgarstjórans í Reykjavík þann 5. ágúst 1982 þar sem viðstaddir voru Davíð Oddsson þáverandi borgarstjóri, Geir Hallgrímsson fyrrverandi borgarstjóri, Jón G. Tómasson þáverandi borgarlögmaður og Alfreð Guðmundsson fyrrverandi forstöðumaður Kjarvalsstaða.

Minnisblað um þennan fund er lagt fram á dómsskjali nr. 24 staðfest með upphafsstöfunum DO sem standa fyrir nafn þáverandi borgarstjóra, Davíðs Oddssonar. Skjal þetta er fyrsta skriflega gagnið sem stafar frá stefnda þar sem fjallað er á hvaða grundvelli borgin telji til eignarréttar yfir munum þeim sem mál þetta varðar.

Tilefni fundarins er lýst í upphafi þannig að erfingjar Jóhannesar S. Kjarval og erfingjar Sveins Kjarval hafi með atbeina Guðmundar Axelssonar listaverkasala í Klausturhólum leitað til lögmanns til þess að sýna fram á að Reykjavíkurborg hefði ekki fengið málverk, teikningar og aðra muni að gjöf frá Kjarval heldur hafi einungis verið um að ræða munir þessir hafi verið teknir til varðveislu.

Í minnisblaðinu er eftirfarandi haft eftir Geir Hallgrímssyni:

“Geir Hallgrímsson sagði, að þessar myndir ásamt fleiri munum hefði verið afhent sér af Kjarval hinn 7. nóvember 1968, að tilhlutan Kjarvals. Enginn vafi sé á því í sínum huga, að þar hafi verið um að ræða gjöf til borgarinnar, ekki háð annarri kvöð en þeirri, að borgin léti gera við myndirnar og hefði þær til sýnis í húsakynnum sínum.”

Í þessum orðum Geirs kemur ekki fram bein fullyrðing um meinta munnlega gjafayfirlýsingu Jóhannesar S. Kjarvals heldur virðist fremur um að ræða ályktun hans um að það að borgin tæki vörslur munanna fæli í sér að gjöf væri að ræða.

Í minnisblaðinu er ekkert haft eftir Alfreð Guðmundssyni um hans afstöðu eða vitneskju um tilurð meints eignarhalds borgarinnar.

Fram kemur að borgarlögmaður telji að sönnunarbyrði hvíldi á erfingjum og þar myndu vega þungt að ekki hefði verið hreyft við málinu fyrr en tæpum tíu árum eftir að ræðu Birgis Ísleifs Gunnarssonar fyrrverandi borgarstjóra við opnun Kjarvalsstaða en í sýningarskrá sem greinir frá opnuninni hafi ræða hans birst en í henni hafi verið gefið til kynna að borgin hefði eignast öll þau verk sem um ræðir. Þá er vísað til þess að í ræðu Halldórs Laxness við opnunina hafi einnig verið tekið fram að borgin hafi fengið myndir “ánafnaðar” áður en Kjarval lést.

Í minnisblaðinu segir í framhaldi af umfjöllun um ræðu Halldórs Laxness:

“Einhvern veginn hefur hann, þessi þekkti vinur Kjarvals haft vísbendingu um það. Þetta hefur Baldur Guðlaugsson sennilega ekki athugað.”

Sú ályktun sem virðist dregin af umfjöllun í ræðu Halldórs Laxness um meinta gjöf fær ekki staðist enda hafði þegar á þessum tíma birst frétt um þetta í Morgunblaðinu eins og áður greinir auk þess sem skáldið gæti að sjálfsögðu hafa fengið upplýsingar um “gjöfina” hjá Reykjavíkurborg. Miðað við atvik í lok árs 1968 og í upphafi árs 1969 og heilsufar Kjarvals þessum tíma sýnist harla ólíklegt að Halldór Laxness hafi fengið upplýsingar um þetta frá Kjarval sjálfum.
Þá verður ekki annað ályktað af þessum orðum en þegar fundurinn var haldinn hafi fundarmönnum verið kunnugt um niðurstöðu eða afstöðu Baldurs sem væru ekki í samræmi við sjónarmið Reykjavíkurborgar í þá veru að um gjöf væri að ræða.

Í lok minnisblaðsins er eftirfarandi skráð:

“Ákveðið var að Geir reyndi að ná sambandi við Ragnar í Smára, sem nú er á spítala, og jafnframt við Halldór Laxness til að fá staðfestingu þeirra.
Að öðru leyti var ákveðið að borgarlögmaður hefði nú samband við Baldur Guðlaugsson og fengi upplýst hvaða gögn hann er með í málinu og kannaði til þrautar öll þau gögn, sem finnanleg væru á skjalasafni borgarinnar.”

Handritað er á minnisblaðið eftirfarandi:

Fundur 20/9 ´82 með Baldri Guðlaugssyni hrl.
Menn samdóma um að nú væru komin fram þau gögn sem líklegt væri að finnanleg væru. Baldur sagðist myndu kynna skjólstæðingum sínum stöðu málsins og láta síðan borgina vita um framhaldið.”

Undir handritaða textann eru einnig settir upphafsstafirnir DO til staðfestingar.


Samantekt Baldurs Guðlaugssonar lögmanns kemur fram í minnisblaði sem er dags. 21. september 1982, daginn eftir framangreindan fund með borgarstjóra. Hafa því væntanlega þau gögn og upplýsingar sem vísað er til af lögmanninum legið fyrir á fundinum með borgarstjóra.

Í upphafi er gerð grein fyrir þeim gögnum sem hann kannaði og við hverja hann hafði haft samband við vegna málsins.

Hvorki var haft samband við Halldór Laxness eða Ragnar í Smára sem vísað hafði verið til á fundinum 5. ágúst 1982.

Þá hefur komið fram að ekki eru til neinar staðfestingar frá tilgreindum aðilum í samræmi við þá fyrirætlan sem lýst er í minnisblaðinu frá fundinum þann 5. ágúst 1982.

Samkvæmt samantekt lögmannsins byggir Reykjavíkurborg eignarhald sitt á því að eignaryfirfærsla til borgarinnar hafi farið fram með munnlegri gjafayfirlýsingu Kjarvals til borgarstjóra þann 7. nóvember 1968.

Bar nú svo við að til sönnunar þeirri fullyrðingu var lagt fram skriflegt vottorð Alfreðs Guðmundssonar staðfest með upphafsstöfum dags. 18. september 1982 svohljóðandi:

“Ég var viðstaddur 7. nóvember 1968 í Sigtúni 7, þegar Jóh. S. Kjarval tilkynnti Geir Hallgrímssyni formlega um gjöf sína til Reykjavíkurborgar. Ég boðaði Geir á staðinn að ósk Kjarvals, sem áður hafði sagt mér, að hann ætlaði að afhenda Reykjavíkurborg myndverk og aðra muni að gjöf.”

Ekki verður séð að Geir Hallgrímsson hafi sjálfur getað staðfest slíka formlega yfirlýsingu hvorki á fundinum þann 5. ágúst 1982 eða í samtölum við lögmanninn.

Í samantektinni er eftirfarandi haft eftir Geir Hallgrímssyni:

“Geir Hallgrímsson, þáverandi borgarstjóri, segist sannfærður um að um gjöf hafi verið að ræða, en man ekki eftir því hvernig þetta bar að. Geir segir að J. Kj. hafi verið umhugað um að verk hans og munir dreifðust ekki meira en orðið var og hafi hann því viljað að Reykjavíkurborg eignaðist umrædda muni og varðveitti að Kjarvalsstöðum sem honum hafi verið hjartfólgnir. Geir taldi að J. Kj. hefði ekki viljað að skýrt yrði frá gjöfinni opinberlega og því hefði ekki einu sinni veirð bókað um þetta í fundargerðir borgarráðs þar sem slíkar fundargerðir væru opinberar.”

Í þessari samantekt kemur ekki fram nein fullyrðing af hálfu Geirs Hallgrímssonar um munnlega gjafayfirlýsingu Jóhannesar S. Kjarvals þann 7. nóvember 1968.

Þá verður vart séð hvernig fullyrðing Geirs um að Jóhannes S. Kjarval hafi ekki viljað að “gjöfin” yrði gerð opinber fær samrýmst umfjöllun þeirri sem birtist í Morgunblaðinu í byrjun nóvember 1971 sem áður hefur verið vikið að.

Niðurstaða Baldurs Guðlaugssonar lögmanns var sú að hann teldi líkur til þess að dómsstólar teldu fullsannað að Jóhannes S. Sveinsson hefði gefið og afhent Reykjavíkurborg umrædda muni þann 7. nóvember 1968. Þá taldi hann mögulegt að Reykjavíkurborg hefði hefðað eignarrétt teldist sönnun um gjafagerninginn ekki hafa tekist.

Að mati stefnanda fær sú niðurstaða sem lögmaðurinn kemst að ekki staðist enda með öllu óljóst á hvaða forsendum unnt er að leggja til grundvallar fullyrðingar gjafþegans um þessi efni.


Samkvæmt gögnum sem aflað hefur verið var það næst í bréfi Þóru Kristjánsdóttur fyrrverandi listráðunauts Kjarvalsstaða dags. 4. nóvember 1985 til borgarráðs Reykjavíkur á dómskjali nr. 29 þar sem umræddir munir voru til umfjöllunar af hálfu Reykjavíkurborgar en þar segir í upphafi:

“Á fundi stjórnar Kjarvalsstaða 1. nóvember 1985 var rætt um Kjarvalssafn Reykjavíkurborgar.
Tilefnið er hið mikla safn teikninga, bréfa, bóka og persónulegra muna, sem Kjarval ánafnaði Reykjavíkurborg 1968, og geymt hefur verið í innsigluðum kössum á Korpúlfsstöðum þar til í sumar, er það var flutt á Kjarvalsstaði og lauslega kannað. Örlítill hluti þessarar gjafar er nú á sýningunni á Kjarval/aldarminning á Kjarvalsstöðum, en megnið er óskráð og bíður frekari rannsókna og viðgerða í kjallara Kjarvalsstaða.”


Í framhaldi þessa var Steinunn Bjarmann fengin til þess að vinna skráningu þessara muna og stóð sú vinna árin 1985, 1986 og 1987.

Um meðferð þeirra muna þeirra sem Reykjavíkurborg fékk í vörslur sínar síðustu mánuði ársins 1968 má vísa til skýrslu Steinunnar Bjarmann dags. 12. mars 1987 á dómsskjali nr. 30.

Um forsögu málsins segir Steinunn í upphafskafla skýrslunnar:

“Það mun hafa verið seinni hluta október 1968 að tók eftir því að á einum gangi Borgarskjalasafns voru tveir eða þrír kassar af ýmis konar dóti og ofan á þeim lágu hattar og þóttist ég þekkja Kjarvalshatta. Það gafst ekki ráðrúm til þess að kanna hvernig á þessu stæði því óvenju mikið var að gera á skjalasafninu þessa dagana. Borgarskjalavörður var þá Lárus H. Blöndal og hafði hann tekið við því starfi haustið áður af Lárusi Sigurbjörnssyni. Fljótlega bárust til safnsins fleiri kassar líkir þeim sem ég hafði áður séð. Lárus H. Blöndal sagði mér þá að þeir væru frá Jóhannesi Sveinssyni Kjarval og óskaði Lárus eftir því að ég tæki það að mér næstu vikur að kanna hvað í þessum kössum væri og ganga frá innihaldinu í geymslu.”

Síðar segir:

“Kassarnir sem dótið kom í voru af öllu tagi og yfirleitt illa farnir. Ég pantaði því nýja kassa og síðan hófst flokkunin 6. nóvember 1968.”

Samkvæmt þessu má ljóst vera að Steinunn hafði þegar fengið fyrirmæli og hafist handa við frágang muna í eigu Jóhannesar S. Kjarvals fyrir 7. nóvember 1968.

Fram kemur að Steinunn hafi tekið við kössum Kjarvals fram í desember 1968 og frágangi síðustu sendingarinnar hafi verið lokið þann 18. desember það ár. Samkvæmt því hafi munir Kjarvals borist til Borgarskjalasafns frá lokum októbermánaðar 1968 fram í desember.

Eftir áramótin 1968/1969 hafi hún vélritað skrá um munina og afhent Kjarval ásamt bréfi svo sem áður hefur verið rakið.

Þann 17. mars 1969 hafi Kjarvalsmunum verið raðað upp í skjalasafninu og hafi verið þar, fram til 7. júlí 1970, þegar kassarnir voru fluttir í geymslu á Korpúlfsstöðum.

Ekkert hafi verið átt við kassa þessa fyrr en sumarið 1971 þegar teknir voru upp og skoðað innihald þeirra sem merktir voru “Myndir og málverk”.

Fram kemur í skýrslunni að Steinunn hafi ekki komið frekar að þessu máli fyrr en árið 1985 þegar hún var fengin til að fara í gegnum þá kassa af Kjarvalsmunum sem hún hafði gengið frá í nóvember og desember 1968.

Samkvæmt skráningu Steinunnar sem hún vann á árabilinu 1985-86 töldust myndir eða myndverk sem bárust úr Sigtúni 7 á framangreindu tímabili vera 5.062.


Af hálfu aðkomenda Jóhannesar S. Kjarvals var ekki að nýju hreyft við þessu máli fyrr en árinu 2000 þegar Ingimundur Kjarval sonur Sveins Kjarvals og Guðrúnar Kjarvals réði lögmann til þess að kanna réttarstöðu fjölskyldunnar hvað varðar muni þessa.

Beindi lögmaðurinn af því tilefni fyrirspurn til borgarlögmanns um það á hvaða grundvelli borgin byggði meintan eignarrétt sinn á.

Í tilefni af því leitaði Eiríkur Þorláksson forstöðumaður Kjarvalsstaða til skjalasafns Reykjavíkurborgar. Í bréfi dags. 16. maí 2001 á dómsskjali nr. 31 verður ekki annað ráðið en meðal embættismanna Reykjavíkurborgar hafi verið gengið út frá því að Geir Hallgrímsson þáverandi borgarstjóri hafi fengið afhent gjafabréf árið 1968.

Í bréfi Hjörleifs Kvaran þáverandi borgarlögmanns dags. 22. október 2001 til Ingimundar Kjarvals á dómsskjali nr. 34 kemur fram að Reykjavíkurborg gangi ekki eftir gjafabréfum frá listamönnum sem gefa borginni listaverk og slíkt þyki óviðeigandi.

Skýring þessi er væntanlega sett fram til stuðnings því að eðlilegt hafi verið af hálfu Reykjavíkurborgar að ganga ekki eftir skjallegri staðfestingu frá Jóhannesi S. Kjarval um meinta gjöf.

Hvorki koma fram í minnisblaði um fund á borgarstjóraskrifstofu þann 5. ágúst 1982 eða í samantekt Baldurs Guðlaugssonar hrl. dags. 21. september 1982 þar sem fjallað er um upplýsingar eða skýringar frá Geir Hallgrímssyni fyrrverandi borgarstjóra, um ástæður þess að hann gekk eftir því við Jóhannes S. Kjarval þann 7. nóvember 1968 að hann staðfesti gjöf sína skriflega.

Atvik þessa máls hljóta um margt að teljast einstæð, þó ekki væri nema fyrir fjölda og verðmæti þeirra verka sem um ræðir, auk þess sem um nánast allar eigur listmannsins var að ræða..

Við mat á sönnunarstöðu hlýtur að verða líta til þess að listamaðurinn var á þeim tíma sem um ræðir farinn að finna til verulegs ellihrumleika og því enn ríkari ástæða til þess að gengið væri frá málum með formlegum og öruggum hætti þannig að ekki gæti verið vafi um vilja og tilgang hans með þeim ráðstöfunum sem framkvæmdar voru.

Sú skýring að Jóhannes S. Kjarval kunni að hafa þótt óviðeigandi eða viðurhlutamikið að gefa frá sér skriflegar yfirlýsingar um vilja sinn og fyrirætlanir, hljóta að telja langsóttar.

Benda má á að í september 1966 ritaði Jóhannes S. Kjarval gjafabréf vegna jarðarinnar Einarslóns á Snæfellsnesi sem hann hafði eignast með afsali 1945 sbr. dómsskjal nr. 39.

Þá kemur fram á bls. 311 í 2. bindi ævisögu Kjarvals að haustið 1968 hafi Kjarval skrifað Birni eiganda Ketilsstaða í Hjaltastaðaþinghá þar sem Kjarval hafði byggt sér lítið hús í svokölluðum Hvammi, svohljóðandi bréf:

“Hérmeð sendi ég þér í þessu bréfi kærar kveðjur og lykilinn að Hvammi. Þó enginn lækur ljóðaði er Hvammurinn glaður og góður. Verið þið sæl og blessuð öll börn og Björn.”

Af þessu verður ekki ráðið að Kjarval, hafi þótt óviðeigandi eða viðurhlutamikið að tjá sig með skriflegum hætti um ráðstafanir sem hann gerði með eigur sínar.
__________________________________________

Á því er byggt að af hálfu stefnanda að sönnunarbyrði um gjafagerning og efni hans hvíli á meintum gjafþega. Þannnig beri að leggja til grundvallar í málinu að stefnda Reykjavíkurborg hafi sönnunarbyrði fyrir því að Jóhannes S. Kjarval listmálari hafi með munnlegri yfirlýsingu þann 7. nóvember 1968 lýst því yfir með bindandi og endanlegum hætti að munir þeir sem þá voru á vinnustofu hans að Sigtúni 7 og þeir sem áður höfðu verið fluttir úr henni, skyldu verða eign Reykjavíkurborgar án endurgjalds.

Með vísan til umfjöllunar hér að fram og framlagðra gagna hljóti að teljast fjarri lagi að Reykjavíkurborg hafi tekist að sanna tilvist slíkrar yfirlýsingar enda geti fullyrðingar fyrirsvarsmanna og starfsmanna gjafþegans sjálfs ekki talist fullnægjandi sönnunargögn um þessi efni. Önnur gögn styðji eigi heldur fullyrðingar í þá veru. Engin marktæk sönnunargögn séu til staðar sem sanni eða staðfesti fullyrðingar Reykjavíkurborgar um eignarrétt þeirra.
Rík skylda hafi hvílt á Reykjavíkurborg sem opinberum aðila að ganga tryggilega úr skugga um og láta staðfesta með skriflegum hætti hver væri tilgangur eigandans, Jóhannnesar S. Kjarvals, með því láta borginni vörslur tilgreindra muna í té. Þessi skylda hafi verið sérstaklega brýn þar sem um nálega allar eigur listamannsins var að ræða og kunnugt var að hann átti skylduerfingja á lífi auk þess sem vegna aldurs og heilsufars hlaut að leiða til þess að gengið yrði frá gerningi með formlegum hætti.

Byggt er sérstaklega á því að þau samtímagögn sem til eru frá þeim tíma þegar vörsluskipti urðu, styðji alls ekki fullyrðingar stefnda heldur þvert á móti eins og rakið hefur verið. Mikilvægast í þeim efnum er að skjöl þau sem beint var að Kjarval sjálfum frá Steinunni Bjarmann og bárust til hans fjalla ekki að neinu leyti um yfirfærslu eignarréttar eða gjöf heldur styðja þau þvert á móti að munirnir hafi verið teknir til geymslu.


Í gögnum máls þessa hefur því verið hreyft að Reykjavíkurborg kunni að hafa hefðað eignarrétt að munum þeim sem komust í vörslur borgarinnar haustið 1968 ef ekki yrði talið sannað að um gjöf hafi verið að ræða í öndverðu.

Um þetta er í fyrsta lagi vísað til þess að af hálfu Reykjavíkurborgar í svörum til stefnanda hefur ekki verið byggt á hefð enda vart við hæfi að opinber aðili haldi slíku fram gagnvart erfingjum og dánarbúi.

Á því er einnig byggt af hálfu stefnanda að hefðun geti ekki komið til álita þegar af þeirri ástæðu að samkvæmt 3. mgr. 2. gr. hefðarlaga nr. 46/1905 geta umráð sem koma til vegna geymslu ekki heimilað hefð.
Fyrir liggur í máli þessu að ef ekki er sannað að um gjöf hafi verið að ræða, að þá getur afhending tilgreindra muna ekki hafa verið nema til geymslu.

Þá er einnig byggt á því að Reykjavíkurborg geti ekki talist uppfylla huglæg skilyrði til hefðar enda a.m.k. ljóst að þeim var þeim eða mátti vera kunnugt um afstöðu erfingja áður hefðunartími gat fyrst verið liðinn.

Tómlæti getur með öðrum hætti en hefð ekki leitt til yfirfærslu eignaréttar og skiptir því eigi máli hversu langur tími er liðinn frá því afhending átti sér stað.


Samkvæmt framangreindu er á því byggt að dánarbú Jóhannesar S. Kjarval sé enn lögmætur eigandi þeirra muna voru teknir af vinnustofu hans að Sigtúni 7, Reykjavík í október fram í desember 1968 og nú eru í vörslum stefndu. Því beri að fallast á kröfur stefnanda um viðurkenningu eignarréttar og afhendingu munanna enda sé rétt og skylt að þeir komi til skipta úr dánarbúinu þannig að lögmæt og vafalaus eignayfirfærsla geti farið, þar sem meðal annars yrði staðin skil á lögmæltum erfðafjárskatti vegna hennar.

Tilvísun til helstu réttarheimilda:

Um aðild stefnanda er vísað til laga nr. 20/1991 sbr. sérstaklega 2. gr., 85. gr. og 2. mgr. 95.sbr. sbr. og 155. gr. Vísað er einnig til erfðalaga nr. 8/1962.

Stefnandi byggir kröfur sínar á almennum reglum eignarréttar og rétti eiganda til varslna.
Vísað er til almennra reglna samningaréttar um gjafaloforð og sönnun þeirra.
Vísað er til laga nr. 46/1905 um hefð.

Um viðurkenningarkröfu stefnanda er vísað til 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Dagsektakrafa styðst við 4. mgr. 19. gr. laga nr. 20/1991 og meginreglu ákvæðsins og fordæmi í málum þegar krafist er efnda á skyldu um annað en peningagreiðslu

Málskostnaðarkrafa stefnanda styðst við 129. gr. og 130. gr. laga nr. 91/1991. Stefnandi er ekki virðisaukaskattskyldur aðili samkvæmt lögum nr. 50/1988 og ber því nauðsyn til að tekið verði tilllit til skattsins við ákvörðun málskostnaðar.

Sönnunargögn:

Við þingfestingu málsins mun stefnandi leggja fram eftirtalin gögn:

Nr. 1. Stefna þessi.
Nr. 2. Skrá.
Nr. 3. Skráning Reykjavíkurborgar á listaverkum eftir Jóhannes S. Kjarval merkt K-0001-5301 tekin af vinnustofu Sigtúni 7, Reykjavík árið 1968.
Nr. 4. Skráning Reykjavíkurborgar á listaverkum eftir aðra listamenn tekin úr vinnustofu Sigtúni 7, Reykjavík árið 1968.
Nr. 5. Skráning Reykjavíkurborgar á ýmsum munum teknir úr vinnustofu Sigtúni 7, Reykjavík árið 1968.
Nr. 6. Skráningu Reykjavíkurborgar á bókum teknum úr vinnustofu Sigtúni 7, Reykjavík árið 1968.
Nr. 7. Bréf Eiríks Þorlákssonar forstöðumanns Listasafns Reykjavíkur til borgarlögmanns
dags. 26. ágúst 2004.
Nr. 8. Bréf borgarlögmanns til lögmanns stefnanda dags. 1. september 2004.
Nr. 9. Bréf lögmanns stefnanda til borgarlögmanns dags. 16. júlí 2004.
Nr. 10. Bréf borgarlögmanns dags. 8. júlí 2004.
Nr. 11. Bréf lögmanns stefnanda dags. 20. júní 2004.
Nr. 12. Bréf sýslumannsins í Reykjavík dags. 6. febrúar 2004.
Nr. 13. Beiðni um endurupptöku einkaskipta dags. 19. nóvember 2003.
Nr. 14. Leyfi til einkaskipta dags. 18. apríl 1972.
Nr. 15. Erfðafjárskýrsla dags. 1. apríl 1973.
Nr. 16. Bréf Steinunnar Bjarmann til Jóhannesar S. Kjarval dags. 10. janúar 1968.
Nr. 17. Skrá yfir muni Jóhannesar S. Kjarvals í Borgarskjalasafni unnin af Steinunni
Bjarmann.
Nr. 18. Bréf Ólafs Þórðarssonar til Sveins Kjarval dags. 10. október (nóvember) 1968.
Nr. 19. Ljósrit úr minnisbók Ólafs Þórðarsonar frá árinu 1968 (afhent af syni hans).
Nr. 20. Ljósrit af grein sem birtist í Morgunblaðinu 2. nóvember 1971.
Nr. 21. Afrit af bréfi Ólafs Þórðarsonar dags. 10. nóvember 1971 ásamt ljósriti úr
Morgunblaðinu 3. nóvember 1971.
Nr. 22. Bréf Sveins Kjarvals dags. 28. desember 1976 ásamt afriti af umboði.
Nr. 23. Umboð dags. 7. janúar 1981.
Nr. 24. Minnisblað um fund á skrifstofu borgarstjóra þann 5. ágúst 1982.
Nr. 25. Yfirlýsing Alfreðs Guðmundssonar dags. 18. september 1982.
Nr. 26. Ljósrit úr dagbók Guðmundar Alfreðssonar.
Nr. 27. Minnisblað Baldurs Guðlaugssonar dags. 21. september 1982.
Nr. 28. Bréf Hannesar Péturssonar yfirlæknis dags. 14. júní 1985.
Nr. 29. Skýrsla Þóru Kristjánsdóttur til borgarráðs dags. 4. nóvember 1985.
Nr. 30. Skýrsla Steinunnar Bjarmann dags. 12. mars 1987.
Nr. 31. Afrit pósts frá Soffíu Kjaran dags. 16. maí 2001.
Nr. 32. Skráning símtals við Svanhildi Bogadóttur borgarskjalavörð dags. 30. maí 2001.
Nr. 33. Skráning símtals við Eirík Þorláksson dags. 1. júní 2001.
Nr. 34. Bréf Hjörleifs B. Kvaran borgarlögmanns dags. 27. júní 2001 ásamt fylgiskjölum.
Nr. 35. Bréf Hjörleifs B. Kvaran borgarlögmanns dags. 22. október 2001.
Nr. 36. Yfirlit frá Kjarvalsstöðum um “gjöf Kjarvals”.
Nr. 37. Ljósrit úr DV 22-23. júní 1994 (kolateikningar).
Nr. 38. Ljósrit úr ævisögu Jóhannesar Sveinssonar Kjarval bindi II bls. 301-317.
Nr. 39. Afrit bréf Kjarvals dags. 14. september 1966.
Nr. 40. Yfirlit um æviferil Kjarvals.
Nr. 41. Frásögn Guðrúnar Kjarval skráð þann 22. september 2003.
Nr. 42. Umboð Guðrúnar Kjarval dags. 22. september 2003.
Nr. 43. Umboð Mette Stiil dags. 5. nóvember 2003.

Áskilinn er réttur til að leggja fram frekari gögn.

Skýrslutökur:

Af hálfu stefnanda er áskilinn réttur til að leiða aðila og vitni. Stefnandi mun gera grein fyrir skýrslutökum þegar varnir stefnda liggja fyrir.

Fyrirkall:

Fyrir því stefnist hér með Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, kt. 070465-5239, Rauðalæk 23, Reykjavík, borgarstjóra fyrir hönd Reykjavíkurborgar, kt. 530269-7609, Ráðhúsi Reykjavíkur, til þess að mæta er mál þetta verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dómsal 102 í Dómhúsinu við Lækjartorg, Reykjavík, þriðjudaginn 19. apríl 2005 kl. 10.00 til þess þar og þá að sjá skjöl og skilríki í dóm lögð, hlýða á sókn sakar og til sakar að svara af sinni hálfu. Verði ekki mætt af hálfu stefnda má búast við að á kröfur stefnanda verði fallist eins og þær eru settar fram.

Stefnufrestur eru þrír sólarhringar.



Reykjavík, 15. apríl 2005
f.h. stefnanda,


_____________________________
Kristinn Bjarnason hrl.