Sjúkraskýrsla Jóhannesar Kjarval listmálara.


Efnisyfirlit.

Ástæðan fyrir þessum skrifum eru sjúkraskýrslur Jóhannesar Kjarval listmálara heitins afa míns. Ég sá þær fyrst fyrir tveimur vikum þó að lögmenn og dómari í Kjarvalsmálinu hafi haft þær undir höndum lengi. Fjölskylda Kjarvals ekki fengið að sjá þær hingað til. Ég komst yfir þessar skýrslur þegar ég var á Íslandi nýlega (mars 2007), hvernig get ég ekki sagt, á mína ábirgð verði ég lögsóttur fyrir að birta þær. Ekki skil ég leyndina eftir að hafa lesið þær, ekkert sem eyðileggur orðstír afa míns að mínu mati, aðeins sjúkrasaga gamalmennis. Í raun sterkari lýsingar í bókinni “Kjarval” á geðástandi afa þetta haust.Ástæðan fyrir þessum skrifum er að reyna að sannfæra þig lesandann um að afi hafi verið óhæfur til að gefa mestallt sitt úr vinnustofu sinni 7. nóvember 1968, sem hann gerði ekki, ekkert til frá honum um þann vilja, eingöngu fullyrðingar mörgum árum seinna frá starfmönnum Reykjavíkurborgar sem tóku munina og leigubílstjóra sem keyrði afa minn. Jú, dagbók eftir son starfsmans Reykjavíkurborgar sem kom fram 14 árum eftir meintan atburð. Ég vil benda á lýsingar á næringarástandi afa í sjúkraskýrslunum.
Hér eru lýsingar úr bókinni nefnd hér á undan, textinn Silju Aðalsteinsdóttur. Á bls. 592. haft eftir Ólafi Maríusyni. Sterkari lýsing en nokkuð í skýrslunum:
“Þegar ég sá hann í síðasta skipti var hann fluttur inn á Hótel Borg, orðinn sjúkur maður” segir Ólafur Maríuson. “Þetta var um vetur, það var kalt úti og slydda og hann kom að glugganum á búðinni. Hann var í frakka, nærbuxum og berfættur í skónum og ég ætlaði að spana út til hans og hjálpa honum. En hann vinkaði bara og var horfinn. Ég sá hann aldrei meir.”
Við vitum ekki hvenær þetta var nema fyrir 28. janúar 1969 þegar afi var lagður inn, kom aldrei af spítalanum aftur. Á sömu bls. er önnur lýsing. Jón Þ. Ólfasson gaf skýrslu um þetta í Héraðsdómi og sagði þessa frásögn ekki rétta, hann sjálfur en ekki faðir hans sem hjálpaði föður mínum að hemja afa:
“Jón Þ. Ólafsson, sonur Ólafs Þórðarsonar, systursonar Jóhannesar, minntist þess að Sveinn Kjarval hefði hringt í Ólaf meðan Jóhannes var enn á Hótel Borg og beðið hann að hjálpa sér með pabba sinn. Þegar Ólafur kom inn á hótelið æddi gamli maðurinn um hótelherbergið á grænum ullarbol en engum brókum og heimtaði að fara upp á Kjalarnes...”
Frásögnin heldur áfram en sleppt hér. Mikilvægt atriði að afi minn var lagður inn á Landspítalann sumarið fyrir þetta haust til rannsóknar og var á spítalanum í nokkra daga. Ástandi hans lýst og er í þessum sjúkraskýrslum. 23. júlí 1968 eða rúmlega þremur mánuðum fyrir þessa meintu gjöf hans. Afi þá settur á tvö vanabindandi geðlyf (Artane og valíum). Ég er sannfærður um að afi hafi sturlast af þessum lyfjum og heilsan hrunið, þau jafnvel ástæðan fyrir lýsingunum hér á undan og ástandinu samkvæmt skýrslunni 28. janúar 1969. Þegar byrjað er að taka þessi lyf er ekki hægt að hætta, fráhvarfseinkennin óviðráðanleg, sérstaklega fyrir gamalmenni sem drakk áfengi. Tekið fram í viðvörunum um Artane að varasamt sé að gefa gamalmennum vegna hættu á ruglástandi, einnig að ekki megi drekka ofan í lyfið.
Annað mál að terpentínan sem málarar nota á að hafa áhrif á taugakerfið og þau kannski upphafseinkennin sem Kjarval fer í læknisskoðun út af um sumarið. Hver sem les þessar skýrslur hlýtur að skilja að þarna er 83 ára sjúklingur sem var óhæfur að gefa eigur sínar, sérstaklega þegar tekið er tillit til hegðunar hans samkvæmt þessum lýsingum á undan og ástands hans 28. janúar 1969 þegar hann er lagður inn til langframa.
Mín sannfæring að ástand hans þá hafi verið vegna lyfjanna sem hann var á, hann ekki ráðið við þau, sem sagt læknafúsk. Viðurkenni að ég hef enga sannanir fyrir í þessu. Ég trúi því að dómari hefði aldrei þorað að fella þennan dóm hefði málið fengið eðlilega umfjöllun í fjölmiðlum, sem það fékk ekki. Eða ef sjúkraskýrslurnar hefðu verið opinberaðar í byrjun, þess vegna að þeim var haldið leyndum að mínu mati. Margar ástæður fyrir því að þessi dómur var út í hött sjúkraskýrslurnar bara ein, en ég að fjalla um þá hlið núna.

LANDSPÍTALINN

REYKJAVÍK

PÓSTHÓLF 1036 Reykjavík 19 Deild IIIHÞV/VS

Jóhannes Sveinsson Kjarval,f.5.11’85, listmálari, Sigtúni 7, p.t. Hótel Borg Rvk.
Innl: 20/7-23/7’68

Diagn.: Paralysis agitane. (handskrifað) Parkinson sjúkdómur (óljós ástæða)
82 ára gamall karlamaður, sérkennilegur í háttum, en ern og skýr í hugsun.Hefur ætlað sér í læknisskoðun vegna vaxandi svefnleysis, hægðatregðu og þreytu sl. 10 ár. Leggst nú til rannsóknar á Landspítalann fyrir áeggjan vina og velunnara.

Heilsufar: Hefur verið ágætt. Slasaðist á fæti í æsku, fékk spænsku veikina í Danmörku. Einu sinni yfirlið fyrir nokkrum árum.

Skoðun: 82 ára, grannvaxinn og beinvaxinn karlmaður, Hugsun er frjó og skýr. Þreytulegur en ern. Brady mimik. Gangur er hægur og gleiður. Í hvíld er greinilegur parkinsons á h. Handlegg og h. Fæti. Við geðshræringu kemur einnig tremor í höfuð og v. Útlimi. Áberandi cog-wheel rigitet

Blóðrásarkerfi: Engin merki hjartabilunar. Blóðþrýstingur 180/90. Æðar eru þykkveggja og nokkuð sclerotiskar. Æðar í augnbotnum eðlil. Miðað við aldur.
Öndunarfæri: Barki í miðlínu.

Brjóstgrind: asthenisk. Öndunarhreyfingar góðar miðað við aldur. Lungu hrein. Meltingafæri:

Tennur viðgerðar, ekkert athugavert. Við þreyfingu á kviðarholi finnast fæcalia í colon, en ekkert annað athugavert .

Expl. Rect.: Harðir feceskögglar í ampull. Prostata er stór og þétt, ekki hnútótt (þvaglát eðliegt að sögn). Hernia í v. Nára.

Niðurstaða og meðferð: Sjúkl. hefur Parkinsonismus á allháu stigi, og gæti það skýrt sjúkdómseinkenni hans að verulegu leyti. Hugarstarfsemi sjúkl. er mjög skýr og frjó miðað við aldur og er því ekki sennilegt, að þessi Parkinsonismus eigi rætur til arteriosclerosis cerebri. Ekkert er heldur, sem bendir til þess, að hér sé um að ræða post ancephalitis Parkinsonimus. Er því langlíklegast, að sjúkl. hafi idiopathiskan Parkinsonismus. Er því langlíklegast, að sjúkl. hafi " idiopathiskan Parkinsonismus” eða með öðrum orðum paralysis agitans.

Blóðstatus svo og blóðursa og blóðsykur var innan eðli. Marka.

Venjulegar þvagrannsóknir sýndu ekkert óvenjulegt.

Rtg. Mynd af ristli var eðlil.

Ekki þótti þörf á frekari rannsóknum. Sjúkl. var útskrifaður á eftirfarandi lyfjum: tabl. Artan 2. mg í 3 daga og síðan 2 mg x 4.. Tabl. Stesolid 2,5-5 mg. vespere. Ennfremur emulsio parafíni 15 gr. X 2-3.

Var boðið að koma til eftirlits vikulega fyrst í stað meðan verið væri að koma lyfjameðferðinni til eftirlits vikulega fyrst í stað, meðan verið væri að koma lyfjameðferðinni gegn
Parkinsonismanum í ákjósanlegt horf.

Hr. Valtýr Albertsson, læknir.
Hr. Ólafur Helgason læknir .
Hr. Ólafur Þorsteinsson, læknir.
-----------------------------------------------------------

Þetta hér á eftir er skýrsla eða greinargerð Engilerts Sigurssona geðlæknis unnin fyrir lögmann fjölskyldunnar. Hún er gerð það þannig að Engilbert skrifar hana út frá spurningum lögmannsins sem eru sendar til hans.
Ég velti lengi fyrir mér hvort ég ætti að birta þessa skýrslu án þess að nefna geðlæknisins sem skrifaði hana. Komst að þeirri niðurstöðu eftir langa hugsun að fjölskyldan hefði borgað fyrir hana og Engilbert brugðist þegar dómurinn féll í algjörri mótsögn við sérfærði álit hans.
Ef að sjúkraskýrslurnar eiga að vera leyndar, hljóta að falla kvaðir á þá sem fá umboð til ð sjá þær og lesa, að fylgja því eftir ef ekki er farið rétt með upplýsingarnar eða sérfræðiálit hundsuð. Ég get ekki séð annað en að Engilberti Sigurðssyni hafi borið skylda til þess að opinbera að dómari hafi hundsað sérfræðiálit hans og kæra það hjá viðeigandi yfirvöldum.
Engilbert gerði ekkert af þessu þó honum hafi verið borgað fyrir þessa skýrslu sem sérfræðingi og þess vegna skylda mín að mínu mati að opinbera skýrsluna með þessum sjúkragögnum. Ef að Engilberti finnst gengið á rétt sinn, þá vona ég að hann leiti hans gagnvart mér. Mín er ábyrgðin.
Ingimundur Kjarval.
Í rauninni er þetta ekki undirskrifuð skýrsla heldur svör við skriflegum spurningum lögmanns. Þó að svörin séu mjög greinargóð (utan eitt, meira um það seinna) þá varð ég fyrir vonbrigðum að þetta var ekki fullgild skýrsla, eitthvað sem ég gerði mér ekki grein fyrir, fyrir en eftir réttarhöldin þegar ég komst yfir þessi gögn.
Þó var eitt svar sem stóð út úr og eyðilagði skýrsluna að mínu áliti, dómari ef hann hefði ekki lesið skýrsluna getað hengt alla sína á ákvörðun á þetta eina svar.
Ég barðist upphaflaga fyrir en fékk ekki, að fleiri en einn geðlæknir yrði látinn gera skýrslu um þessi gögn. Rökin á móti að sjálfsögðu að einn væri nóg, engin ástæða til þess að flækja málið og líklega ekki vel séð. Einnig vildi ég að geðlæknir yrði látinn vitna um skýrlsuna í réttarsal en það ekki samþykkt.

Má vel vera að ég hafi séð of marga “law & order” þætti en það samt mín skoðun.
Spurningin og svarið sem ég er svo óánægður með:

a) Af skoðun af sjúkragögnum er hægt að draga einhverja ályktun um að hvað átt sé við langt tímabil þegar talað er um mjög mikla hrörnun “undanfarna mánuði”.

Svar Engilberts Sigurssonar geðlæknis: Nei.

Þetta svar er í rauninni í algjörri mótsögn við alla skýrsluna þó það sé kannski rétt eitt og sér. Þess vegna hefði verið gott að geðlæknir hefði þurft að skýra þetta svar betur. Auðvitað liggur í augum upp að ekki er hægt að setja sérstakt dagatal á hin ýmsu einkenni, en öll skýrslan er jú um að það hafi verið aðdragandi að þeim einkennum sem er lýst 28. jan. 1969.
Á vissan hátt tel ég þetta eina svar geðlæknis máti að firra sig ábirgð, hann hafi gefið rétt sérfræðiálit en um leið þvegið hendur sínar með þessu eina svari. Nóg um það.

Sæll Engilbert (lögmaðurinn skrifar) Vísa til fundar okkar um daginn. Spurningar varðandi sjúkraskrá og heilsufar Kjarvals.Það sem ég tel að gott væri að fá svo við eru eftirfarandi.
Stutt skýring (þýðing) á eftirfarandi læknisfræðilegum orðum sem seinna koma fyrir í sjúkraskránni.

a) Dementia sensilis – ellivitglöp ellihrumleiki.

b) Cachexia- langavinn vann;ring me[ tilheyrandi þróttleysi og þyngdartapi.

c.) Confusio mentis- rugl/óráð

d.) Paralysis agitans – Idiopathiskur Parkisonsismus = Parkinson´s sjúkdómur af óþekktum orsökum (algengasta formið)

e.) Arterioclerosis cerebri –(ath. Leiðrétta stafesetningu hér til hliðar)- slagæðasjúkdómur í heila með þykknun og kölkun æðaveggja – samanber kransæðasjúkdóma í hjarta

f.) Post encephalia Parkinsonsismus-Parkinson´s sjúkdómur eftir heilabólgu sem fór um heiminn í kringum 1920 (sbr. myndina awakenings).

g.) Idiopathiskan Parkisonismus=Paralysis agitans g.) Artane= lyf gefið til að draga úr vöðvastífleika og fleiri einkennum Parkison´s sjúkdóms h.) Stesolid =díazapam- gefið JSK til að hjálpa honum með svefn og draga úr óróleika (innskot mitt. Sama og Valíum)

2)Spurning lögmanns. Á fundi okkar um daginn fórum við ekki yfir sérfræðirannsókn Einars Baldvinssonar læknis en skýrsla hans er dags. 9. mars 1969. Þar kemur fram”að fyrir tæpu ári síðan lá sjúkl. á deild III Lsp.”. Þá hafi komið í ljós að sjúklingur hafði parkisonsisma á nokkuð háu stigi. “Var hann þá settur á Artane” Líklegt er að þarna sé verið að vísa til innlagningar 20.-
23. júlí 1968. Væri gott ef þú gætir skýrst greiningu Einars í kafla “greining og ráð sérfræðings”.
Svar Engilberts Sigurssonar geðlæknis: Einar Baldvinsson hjartalæknir fann ekki merki um hjartabilun í umræddir skoðun. Hann telur að bjúgur á fótum stafi fremur af ófullnægjandi bláæðalokuvirkni í bláæðum fótleggja eða skorti á próteininu albúmíni í blóði sem oftast tengist vannæringu og leiðir til taps á vökva úr æðum yfir millifrumvef utan æða sem birtist sem bjúgur. JSK var með óreglulegan hjartaslátt í formo gáttaflökts 14/7 1970 sem eykur hættu á heilablóðfalli. Fékk raunar heilablóðfall 3 dögum fyrir andlát sitt, þ. e. 10/4 1972.

3) Spurning lögmanns:

a)Er af sjúkragögnum hægt að álykta að parkinsonseinkenni geti stafað að byrjandi heilabilun?

b) Ef svo er, hvað í sjúrkragögnunum gefur það til kynna.? c) Er hægt að draga ályktanir um það hvenær líklegt sé að heilabilun ef um hana er að ræða, hafi hafist?
Svar Engilberts Sigurrsonar geðlæknis: Af sjúkragögnum sem þú afhentir mér (spanna 20/7 1968 -13/4 1972 þegar JSK deyr) sýna vaxandi og nokkuð samfelld einkenni ellivitglapa frá ársbyrjun 1969. Nioðurstað Valtýs Albertssonar læknis á Landspítala,eftir innlögn JSK þangað 20-23/1968,er að hann sé með Parekinson´s sjúkdóm á allháu stigi. Ekki viðast einkenni vitglapa hafa verið áberandi í þeirri innlögn. Þvert á móti er talað um að “Hugarstarfsemi sjúklings sé mjög frjó og skýr miðað við aldur (82ja ára)”. Ekkert kemur þó fram um hvort hugarstarfsemi var prófuð á einhvrn Hátt annan en með stuttu spjalli á stofugangi. Fram kemur þó sú kvörtun JSK að hann hafi glímt við vaxandi svefnleysi, hægðartregðu og þreytu undangengin 10 ár og leggist inn að áeggjan vina og velunnara. Ekkert kemur fram um n æringarástand og eða neyslu hans á áfengi, en hún mun skv. Upplýsingum sem ættingjar hafa gefið lögmanni sínum hafa verið töluverð á köflum og hann oft að auki nærst illa langtímum saman. Svefntruflanir, hægðatregða og þreyta eru algengir fylgifiskar slíks lífernis, en hægðatregða er aðauki algengur fylgikvilli Parkinson´s sjúlkdóms og einnig oft fylgifiskur byrjandi og lengra genginna ellivitglapa. a) Parkinson´s sjúkdómur tengist vitglöpum, þ.m.t. Alzheimer sjúkdómi, oftar en tilviljun leyfir í rannsóknum. Sami einstaklingur getur þróað með sé rbæði Parkinson´s sjúkdóm og vitglapasjúkdóm, t.d. með þeim hætti að á sextugs – eða sjötugsaldri séu það einkum einkenni Parkinson´s sjúkdóms sem há einstaklingum, en eftir því sem aldurinn færist yfir verði einkenni Alzheimer´s sjúkdóms eða vitglapa vegna æðasjúkdóms í heila meira ávberandi enda taka þau til fleiri þátta í starfsemi miðtaugakerfisins. Á hinn bóginn eru einkenni sem líkjast Parkinson´s sjúkdómi stundum til staðar í upphafi þróunar vitglapasjúkdóms, en ná ekki endilega fullum skilmerkjum Parkinsonssjúkdóms en taka smám saman á sig form ellivitglapa með tilherandi breytingum á persónuleika, minni skynjun og athöfnum daglegs lífs. b) Sjúkragögnin sem ég fékk í hendur greina ekki með neinni vissu á milli ofangreindra möguleika, en það skiptir í raun ekki miklu máli. Frá ársbyrjun 1969 eru einkenni ellivitglapa í aðalhlutverki með skorti á áttum, óráði á köflum, algeru innsæisleysi á eigin þarfir og breyttri dómgreind í samskiptum við aðra(klínir saur á sig og meðsjúklinga í febrúar 1969). JSK er illskeyttur og æstur á tímabilum, stundum með ofsóknarhugmyndir (vel þekkt í vitglöpum) og þarf á hækkandi skömmtum sterkra geðlyfja aðeins og Largactils eða Buronils. Slík lyf auka venjulega greinilega Parkinson´s einkenni hjá sjúklingum með Parkinson´s sjúkdóm en hann virðist þola þau allvel, en fær að vísu lengi vel með þeim áfram lyfið Artane sem dregur úr slíkum aukaverkunum. Inn á milli (5/4 1969) er hann “skýrari bæði í hugsun og í öllu fasi ... hægt að halda uppi hann allskynsamlegum samræðum um stund, og virðist hann fullkomlega áttaður á stund og stað”.. Í nótu ÞJ frá 20/3 1970 segir: “Líðan hans hefur verið mjög svipuð undanfarna mánuði...með nokkuð háttbundnum sveiflum. Ennþá er af og til hægt að tala við hann um stundarsakir og heldur hann þá þræði að mestu, jafnvel þó óljóst sé með köflum”. Í nótu frá 10/9 1970kemur fram: “Honum hefur verið boðið að hafa hjá sér áhöld til þess að teikna eða mála, en hafnar því.” Í nótu ÞJ frá 31/12 1970 segir: “Sjúkl. hefur nú dvalið hér undir 2 ár, og hefir heilsu hans smám saman hrakað þennan tíma. Fullvíst er að hann þekkir nú hvorki lækna né hjúkrunarfólk með nafni, en ber góð kennsl á starfsfólkið að öðru leyti”. Hann deyr úr lungnabólgu 13/4 1972 eftir að hafa litla fótaferð síðustu mánuðina sem hann lifði.

c) Einkenni svo alvarlega vitglapa sem þeirra sem eru til staðar hjá JSK í ársbyrjun 1969 þróast yfirleitt á mörgum árum nema þau komi í kjölfar heilablóðsfalls eða annars verulegs áfalls sem miðtaugakerfið verður fyrir. Engin saga kemur fram í innlögnum 1968 og 1969 sem styður að eitthvað slíkt hafi gerst fyrir 1969. Því er líklegt að auk Parkinsons´s einkenna hafi einkenna ellivitglapa verið að gæta – t.d. breytinga á frumkvæði, dómgreind, atferli, skynjun og athöfnum daglegs lífs á árunum 1964-1968 sbr. Frásagnir ættingja sem þú vitnar til hér að neðan. Sú mynd sem er til staðar frá 1969 bendir því til þess a’einkenni Parkinson´ssjúldóms séu ekki til lengur í aðalhlutverkilíkt og virtist vera tilfellið í 3ja daga innlögn hans hálfu ári áður (20-23/7 1968 á Landspítal. JSK var þá settur á lyfið Artane (benshexol) 2mgx3 fyrst 23/7 1968, aukið í 2mgx4 26/7 26/7 1968 ásamt Stesolid (dázepam) 2,5-5mg fyrir svefn auk hægðarlyfs en 1968, aukið í 2mgx4 26/7 1968 ásamt Stesolid (díazepam) 2,5-5mg fyrir svefnauk hægðarlyfs en ekki kemur neitt fram um áhrif meðferðar þar sem gögn um það vantar.

4) Spurning lögmanns: Er hægt að draga ályktun af sjúkragögnum um það hvort heilsufar Kjarvals hafi versnað nokkuð hratt síðari hluta árs 1968 (eftir 23. jlúí1968)?
Svar Engilberts Sigurssonar: Sjúkragögnin styðja að einkenni ellivitglapa hafi orðið áberandi á þessu tímabili sbr. Ofangreind svör.Ofnotkun eða röng notkun lyfjanna sem hann var settur á í júlí getur þó einnig haft áhrif í þá veru. Á hitt ber þó að líta að innlögnin 20-23/7 1968 varði aðeins í 3 sólarhringa og hann gæti hafa átt þokkalegt tímabil á þeim tíma, líkt og gerðist stundum í nokkra daga í senn eftir innlögn hans á geðdeild Borgarspítalans 1969. Frásagnir ættingja eða minnugra samferðamann sem umgengust hann á árunum 1967-1968 gætu hér verið hjálplegar. Þó er sagt í nótu úr innlögn hans á Landspítala í ársbyrjun 1969 að honum “hefir hrörnað mjög bæði psychist (andlega) og fysiskt (líkamlega) á undanförnum mánuðum.” Ekki er þó telgreint hvaðan þær upplýsingar eru fengar né heldur um hversu marga mánuði var að ræða.

5) Spurning lögmanns: Bendir eitthvað til þess í sjúkragögnum að ástand Kjarvals þegar hann kom á Landspítalann í lok janúar 1969 hafi verið vegna skyndilega veikinda eða breytinga á heilsufari?
Svar Engilbert Sigurssonar: Vísa í svari við spurningu 4 að ofan. Við það má bæta að hann má bæta að hann var áberandi illa nærður og virðist öðrum þræði hafa mestar áhyggjur af hægðartregðu og óþægindi við að hafa hægðir. Skoðun sýndi hægðartregðu vegna harðra hægða en starfsemi þarma virtist að öðru leyti vera eðlileg og ekkert kom fram sem benti til illkynja sjúkdóms í meltingarvegi skv. Nótu Landspítalalæknis frá 18/2 1069 þar sem talað er um þörf fyrir meðferð á vegum geðlækna. Er Landspítalalæknis frá 18/2 1969 þar sem talað er um þörf fyrir meðferð á vegum geðlækna. Er hann fluttur sama dag á geðdeild Borgarspítala.

6) Spurning lögmanns: Í sjúkraskrá Landspítalans dags. 18 febrúar 1969 þegar Kjarval var útskrifaður til vistar á geðdeild Borgarspítalans kemur fram sú ályktun að hann hafi hrörnað mjög bæði pychiskt og fysiskt á undanförnum mánuðum eins og það er orðað.

b) Af skoðun af sjúkragögnum er hægt að draga einhverja ályktun um að hvað átt sé við langt tímabil þegar talað er um mjög mikla hrörnun “undanfarna mánuði”.
Svar Engilberts Sigurssonar geðlæknis: Nei.

c) Spurning lögmans:Getur það haft áhrif á hrörnun ef sjúklingur notar lyfin Artane og Stesolid, er vannærður og neytir áfengis
Svar Engilbert Sigurssonar geðlæknis: Já það getur leitt til tímabundins ruglástands og jafnvel sturlunarástands, einkum hjá eldri einstaklingum með byrjandi heilabilun.

7) Spurning lögmanns: Nú hafa afkomendur Kjarvals upplýst mig um að þau minnst parkisoneinkenna allt til ársins 1964. Sú tímasetning er föst í minni þar sem Ingimundur Kjarval minnist þess að Kjarval hafi átt erfitt með að halda á kaffi bolla í fermingu sinni vegna skjálfta. Tove Kjarval minnist þess að líklega árið 1965 þegar hún hitti Kjarval í Sigtúni 7 hafi hann verið með talsverðan skjálfta en þegar hann gekk til þess að mála hafi henni virst eins og skjálftinn hyrfi. Einnig hefur verið lýst að Kjarval hafi eftir að hann flutti á Hótel Borg úr Sigtúni 7 árið 1965 hafi hegðun hans borið þess merki að ekki væri allt með felldu. Þannig hafi hann verið nakinn utan dyra. Þá lýsa afkomendur því og raunar fleiri sem umgengust Kjarval hin síðustu ár hafi hann verið bitur út í lífið og fundist það misheppnað. Tekið skal fram að framangreindum atriðum hefur að nokkru verið lýst í bókum sem gefnar hafa verið út um ævi Kjarvals. Hafa þessi atriði einhverja þýðingu við mat á heilsufari sem lýst er í sjúkraskrá Kjarvals og þá hvaða þýðingu?

Svar Engilbert Sigurssona geðlæknis: Þessi atriði styðja fremur en veikja það sem sagt hefur verið um samhengi heilsu hans frá 1969-1972 og líklega byrjandi parkinsonseinkenni á árunum 1964-1968 með vægum heilabilunareinkennum sem hafa þá fremur falist í vægum breytingum á dómgreind og persónuleika en minni. Það sem flækir þó myndina er hitt að næringarástand hans virðist hafa verið slæmt árum saman. Áfengisneysla getur einnig í fráhvarfi valdið skjálfta og vitaskuld dómgreindarbresti og auknum líkindum á ögrandi atferli og ég hef engar upplýsingar um hversu mikil eða tíð hún var á þessum tímum.

8) Spurning lögmanns: Eru einhver önnur atriði sem þú telur að máli skipta við mat heilsufars Kjarvals síðari hluta árs 1968. Ef svo er, er óskað eftir að gerð verði grein fyrir þeim?
Svar Engilbert Sigurssonar geðlæknis: Vitna hér í svar mitt að ofan við spurningu 4: Frásagnir ættingja eða minnugra samferðamanna sem umgengust hann á árunum 1967-1968. Frásagnir ættingja eða minnugra samferðamanna sem umgengust hann á árunum 1967-1968 gætu verið hér hjálplegar. Þó er sagt í nótu úr innlögn hans á Landspítala í ársbyrjun 1969 að honum “hefir hrörnað bæði psychist (andlega) og fysiskt (líkamlega) á undanförnum mánuðum”. Ekki er þó tilgreint hvaðan þær upplýsingar eru fengnar né heldur um hversu marga mánuði var að ræða.

------------------------------------------------------ENDIR Á SKÝRSLU.

Ég tel að ekki hafi verið safnað saman því sem geðlæknir spyr um í enda skýrslunnar. Þess vegna ætla ég að setja hér á eftir tilvitnanir úr bókum sem gætu hjálpað lesanda að dæma sjálfur: Hér á eftir ætla ég að setja tilvitnanir úr bókum sem mér finnst skipta máli í þessu sambandi.

Fyrst úr nýjustu bókinni "Kjarval", textinn Silju Aðalsteinsdóttur.

Á bls. 592. haft eftir Ólafi Maríusyni: " Þegar ég sá hann í síðasta skipti var hann fluttur inn á Hótel Borg, orðinn sjúkur maður" segir Ólafur Maríuson. "Þetta var um vetur, það var kalt úti og slydda og hann kom að glugganum á búðinni. Hann var í frakka, nærbuxum og berfættur í skónum og ég ætlaði að spana út til hans og hjálpa honum. En hann vinkaði bara og var horfinn. Ég sá hann aldrei meir."

Við vitum ekki hvenær þetta var nema fyrir 28. janúar 1969 þegar afi var lagður inn, kom aldrei af spítalanum aftur. Á sömu bls. er önnur lýsing. Jón Þ. Ólfasson gaf skýrslu um þetta í Héraðsdómi og sagði þessa frásögn ekki rétta, hann sjálfur en ekki faðir hans sem hjálpaði föður mínum að hemja afa: "Jón Þ. Ólafsson, sonur Ólafs Þórðarsonar, systursonar Jóhannesar, minntist þess að Sveinn Kjarval hefði hringt í Ólaf meðan Jóhannes var enn á Hótel Borg og beðið hann að hjálpa sér með pabba sinn. Þegar Ólafur kom inn á hótelið æddi gamli maðurinn um hótelherbergið á grænum ullarbol en engum brókum og heimtaði að fara upp á Kjalarnes..." Frásögnin heldur áfram en sleppt hér.

------------------------------------------------------------------------------------

Úr Kjarvalskveri eftir Matthías Jóhannessen. En sú bók er um tímann ekki löngu áður en afi fer á spítala. Ég og aðrir í fjölskyldunni vita að hann var farinn að drekka meira en góðu hófi gengdi þessi seinustu ár þó að afi hefði verið reglumaður allt sitt líf.

bls. 33:"Hvaða orð er það sem vantar hjá okkur?" Ég veit það ekki, en listin má ekki vera móðgun. Ég hefði hefði átt að hafa þarna dálítið póetískt orð til að forfína þessa hugsun. "Bezt að ég gefi þér einn danskan bjór , á meðan þú ert að hugsa um þetta og skilja það." Svo tók hann upp eina dós af Túborg, opnaði hana, en helmingurinn af björnum sprautaðist yfir hann: "Bunulækur blár og tær," sagði hann og glotti.

-------------------------------------------------------------------------------------

Svo úr ævisögu Indriða G. Þortsteinssonar um Kjarval. Það verður að muna að Indriði G. er jafnvel opinber ævisöguritari Kjarvals, svo skrif um drykkjuskap hans ætti að hafa meiri vikt en kannski annara.

bls. 287-288 "Kjarval var kominn fast að áttræðu og fann að óðum leið að því að hann þyrfti að komast "í hús", það er að vera ekki sjálf sín um alla hluti. Hann átti heimboð hjá Jóhannesi Jósefssyni fornvini sínum sínum og eiganda Hótel Borgar. Þar hugsaði hann sér að dvelja ef honum yrði áræðis vant að búa einn. Finnbogi Lárusson leitaði alltaf fundar við hann, ætti hann erindi til Reykjavíkur, og sat stundum hjá honum í Sigtúni. Þá var Kjarval orðinn mjög varkár út af átroðingi. "Maður varð að hrópa úti á götu til að fá hann út í glugga svo hann gæti séð hver þetta væri". sagði Finnbogi. Annars svaraði hann ekki. Og kveddi einhver dyra fór hann og opnaði rifu og lokaði svo aftur ef hann taldi að um átroðning væri að ræða. Finnbogi mátti aldrei fara frá honum öðruvísi en hann fengi bíl undir hann. Í síðasta skiptið sem þeir sáust var pantaður bíll samkvænt venju, og fylgdi Kjarval honum út, enda var ekki um annað að ræða en hann borgaði fyrir bílinn þangað sem Finnbogi ætlaði. Finnbogi og Kjarval áttust einhver orð við aftan við bílinneftir að hann hafði greitt farið og voru þeir að kveðjast. Þá rauk bíllinn af stað. Kjarval varð svo reiður að Finbogi hafði aldrei séð aðrar eins hamfarir. "Hvað er þetta, er þetta brjálaður maður sem þeir senda mér?" hrópa hann á eftir faratækinu. Hann stökk bókstaflega í loft upp. Svo rauk hann í símann og sagði þeim á stöðinni að þeir hefðu sent sér bandvitlausan mann.

bls. 289: Átroðningur sem Kjarval varð fyrir óx jafnt og þétt eftir að haan flutti inn í Blikksmiðju Breiðfjörðs. Hann hafði ama af þessum átroðningi. Stundum voru á ferli sömu gestir og sótt höfðu til hans í Austurstræti12. Þeir komu til hans og heimtuðu brennivín, en hann tók jafnan af skarið og sagði: Hér inni er ekkrt vín. Það sagði hann satt, en í kassa frammi á stigapalli geymdi hann áfengi sem margir urðu til að senda honumí þakklætis og vináttuskyni. Teppi var ofan á kassanum og sátu hinir þorstlátu á þessum kassa og biðu áheyrnar.

bls. 292 Það bar við þegar hann var að koma úr túr frá að málasvona um fimmleitið síðdegis að hann veifðai þeim Pétri og Ólafi í gegnum búðargluggann. Þá hlupu þeir strax til hans því þeir urðu að vera fljótir. "Þið komið með hvítvínið," sagði hann. "Ég fer að sjóða ýsuna." Og það mátti aldrei sjóða fisk nema við gullúr. Hann átti forláta gullúr sem hann geymdi í kassa og snerti aldrei nema þegar hann sauð fisk. Úrið hafði hann fengið að gjöf. Þegar félagarnir komu með hvítvínið stóð Kjarval á stigapallinum glaður og kátur og var að lýsa því hve hann hlakkaði mikið til að borða ýsuna. Þeir byrjuðu á því að taka upp hvítvínsflösku og hella víninu á könnu, en Kjarval brá könnunni á varir sér og svolgraði stórum. Stundum var líka glæra (brennivín) og gilligogg (ýmislegt góðgæti) með í spilinu, (Athugun mín. Hér er ekki verið að ræða um mann á besta aldri heldur gamalmenni sem svolgrar áfengið. Eða eins og þú hefur bent á Kristinn, afi var svo mikil persóna, bæði í augum fólks og alvöru að fólk tók kannski ekki eftir hvesu hrumur hann var orðinn seinast áður en að hann fór á spítalann .)

bls. 294: Samvistir þeirra félaga og Kjarvals á Hótel Borg voru með öðrum hætti. Á seinni árum átti Kjarval það til að drekka nokkuð mikið af glæru, en oftast hittust þeir í kaffi.

bls. 306, (þetta er á afmæli Kjarvals 1965):"Menns tóðu í stofunni nær Tjarnargötunni og röbbuðu saman yfir fordrykk. Höfðu þeir Gylfi og dr. Bjarni (menntamálaráðherra og forsætisráðherra) ráðið með sér að þeir skyldu fara með Kjarvalupp á efri hæðina og afhenda honum orðuna þar. Þeir gengu því allir þrír upp í hornherbergið norðaustanvert í húsinu og var dr. Gylfi með orðuna í kassa sem hann lagði á borð sem stendur framam við sófa í herbeginu. Dr. Bjarni fékk sér sæti en dr. Gylfi og Kjarval stóðu á miðju gólfi. Dr. Bjarnifór þá að tala um orðuveitinguna, nánast að óska Kjarval til hamingju og þakka honum fyrir einstæðan skerf til listarinnar. Eitthvað sem Dr. Bjarni fór að tala um mun hafa farið í taugarnar á Kjarval þótt dr. Gylfi veitti því ekki athygli, nema allt í einu varð Kjarval mjög æstur og fór að tala einhverja vitleysu. Ráðherrarnir urðu alveg miður sín og var dr. Bjarni staðinn á fætur í þessum ósköpum. Þuldi Kjarval ýmislegt og fór m. a. að tala um hégómaskap í sambandi við orður. Sagði hann að sér hefði ekki verið sýndur sómi í lífinu og því væri verið að gera það þegar hann væri kominn á gamalsaldur. Hann var í fullkomnu uppnámi og eftir nokkra ræðu strunsaði hann út úr herbeginu og beint út úr húsinu án þess að koma við á hæðinni........"

bls. 309. (þetta er 10. júní 1966): Kjarval fékk stóran drykk af brennivíni og glas af appelsíni fyrir hádegisverð". (Innskot mitt, menn verða að muna að hér er verið að skrifa um gamalmenni

bls. 311: "Veturinn eftir þessa ferð (1966-67) skrifað Kjarval Birni á Ketilsstöðum og kvaðst hafa verið lasinn þá um veturinn."

bls. 312: Guðbergur Bergsson, rithöfundur, var um tíma næturvörður á hótelinu. Hann hefur skrifað að hann hafi kynnst Kjarval talsvert vel þau tvö ár sem hann hafði þennan starfa, "þá orðinn talsvert hrumur og drykkfelldur og kom ég honum oft í bælið, köldum og hröktum, stoltum og einmana en ekki vitund skrýtnum." Honum var afar hlýtt til Matthíasar Johannessen, en yfir höfuð var lund hans köld og hlutlaus. Og ég man hvað líkami hans var kaldur þegar ég kom honum ósjálfbjarga í rúmið."
Myndin hér á eftir tekin um sumarið 1968. Allir sjá að afi er farinn að leggja af, orðinn mjög horaður.
Ég væri ekki hissa ef Guðbergur væri að lýsa aukaverkunum frá lyfjunum sem afi var á en get ekkert fullyrt um það. Kv. Ingimundur Kjarval.

Sjúkraskýrsla Jóhannesar Kjarval listmálara frá geðdeild Borgarspítalans.

Hér á eftir er svo sjúkraskýrslan frá Borgarspítalanum, skýrir sig algjörlega sjálf. Ég sleppi niðurstöðum úr rannsóknum sem hafa enga þýðingu hér (blóðrannsóknir og þessháttar).
Eftir að dómurinn féll 3. janúar síðastliðinn varð ég fyrir áfalli, mest vegna þess að ég fór að efast um eigin dómgreind, hafði sett traust mitt í dómarann Allan V. Magnússon. Síðan hef ég náð mér, orðinn þess fullviss að engin nema siðspilltur maður hefði getað komist að þeirri niðurstöðu sem Allan V. Magnússon gerði, Það stendur.
Eina ástæðan að ég birti þessr sjúkraskýrslur er úrskurður Allans V. Magnússonar, hann sem skipaði leynd yfir þessum skýrslum. Þar á móti hlýtur að koma að hann átti að meta þær áður en hann felldi dóminn. Virðist að Allan V. Magnússon hafi falið þær til þess að geta hundsað, engin önnur skýring. Ég tek fram að ég sá þessar skýrslur núna fyrst fyrir tveimur vikum þó að dómari og lögmenn hafi haft þær lengi undir höndum.
Má vera að mörgum finnist það sterk orð að kalla dómara siðspilltann en ég get ekki annað en sagt sem mér finnst að mjög hugsuðu máli.
Getur nokkur mótmælt því að maðurinn sem þessar sjúkraskýrslur eru um var gjörsamlega óhæfur að gefa allt sitt "munnlega"rúmlega tveimur mánuðum áður en þessar skýrslur byrja. Er það ekki siðferðislega rotinn dómari sem ákveður slíkt, það hlýtur að vera öllum ljóst sem lesa skýrslurnar.

Hér með skora ég á Allan V. Magnússon að ákæra mig eða að láta ákæra mig vegna þess að ég birti þessar skýrslur gegn boði hans. Ef hann gerir það ekki, hlýtur það að sýna að hann veit að það var rangt af honum að setja leynd á þær.Kv. Ingimundur

KjarvalBorgarspítalinn

Geðdeild. Bsp. 2942
Geðdeildarnúmer 187
Jóhannes Sveinsson Kjarval f. 5. 11 1885,
Sigtúni 7, R,

Vanda. Nafn Sveinn Kjarval
Tengsli sonur listmálari.Heimli Sætúni 1 Seltjarnarn.Sími h 15531 v.188317

Innlagningarlæknir
Lyfjadeild Lsp.
Heimilslæknir
Aðrir læknar
Innritun 18.: 2. : 1969 kl. 11.30 frá lyfjadeild Lsp.
Brottskráning Dó 13.: 4. : 1972 kl. 18.40

Greining Dementia senilis, 290,00 (ellivitglöp/almennur ellihrumleiki. Þýðing geðlæknis)(handskrifað) Elliglöp > Heilabilun (Alzeimer)

Fyrri vistir á G.B.Vistir á öðrum Geðdeildum

Varúðarþörf: Gæzlumaður fylgir sjúkl. frá Landspítalanum, og mun dvelja hjá honum þar til öðru vísi verður ákveðið.

Nánari upplýsingar um innlagningu o.s. frv. Í lok janúar mánaðar var sjúkl. lagður inn á lyfjadeild Lsp. Vegna cachexia(langvinn vannæring með tilheyrandi þróttleysi og þyngdartapi, þýðing geðlæknis) og confusio mentis, 2/ (rugl/óráð, þýðing geðlæknis)hefir dvalið þar þangað til hann er nú lagður hér inn til rannsóknar og meðferðar. Við komu er sjúkl. það ruglaður að ekki er viðlit að ná neinu skynsamlegu sambandi við hann, taka sjúkrasögu eða gera á honum kerfaskoðun. Verður því látið bíða þar til betur stendur á síðar, enda fylgja sjúklingi allgóðar upplýsingar frá lyfjadeild Lsp.Handskrifað undir 1) Vaniuoðii (óskiljanlegt)2) óráðBorgarspítalinn
-
Geðdeild Nafn Jóhannes Sveinsson KjarvalSkrásetjandi læknir Þorgeir Jónsson Dags.

Vistaorsök og kvörtun sjúklings
Fjölskyldusaga
Persónusaga
Undanfarnir sjúkdómar-----------------------------------

Núverandi geðhorf: Við innlagningu er sjúkl. allgjörlega ruglaður, skynjar þó auðsýnilega að hann er á sjúkrahúsi, að öllum líkindum ekki áttaður á stað og stund, fullkomlega óraunsær á ástand sitt allt tal samhengislaust, sýslar við dót sitt í tilgangsleysi, vill láta hringja í bíl fyrir sig og fara í burtu.Lyf: T. Chlorpromazine 200 mg. X 3, T. Hydergin 1x3, T. Mogadon.20. 2. ’69 (Þ.J.) Líðan óbreitt. Lyf óbreytt.23. 2. ’69 (Þ.J.) L’iðan mjög svipuð því sem var við innlagningu þó er sjúkli. Að ýmsu leiti sljórri og auðsýnilega undir heldur sterkum lyfjaáhrifum. Lyf: T, chlorpromazine 50+ 50+ 200mg. Annað óbreitt.24.2.’69 (Þ.J.) Er nú ekki eins þungur af lyfjum, líðan að öðru leiti óbreitt. Hefur átt í erfiðleikum með hægðir, reynir oft að hægja sér, en gengur auðsýnilega illa og klínir sjúkl. sjálfa sig og umhverfi sitt saur. Hann er því exploreraður rectalt og finnst dálítið af hörðum saur í ampulla, og er það tæmt út. Lyf óbreitt.

(Innskot mitt: Sumum mun finnast það örugglega óviðeigandi að ég birti þennan hluta sjúkraskýrslunar. Þar á móti vil ég nefna að ég heyrði kjaftasögur út í bæ um þennan atburð sem ungur maður á þessum tíma. Sagt við mig að faðir minn hefði látið loka föður sinn inni á Geðdeild og ekki leift honum að mála og, afi væri að reyna að mála með saurnum úr sér. Þetta gekk um bæinn þá og þess vegna að sleppi ég þessu ekki.)

Dagáll:25. 2.’69 (Þ.J.) Í morgun líður sjúkl. auðsýnilega mun betur, svaf að vísu fremur slitrótt í nótt, en er nú skýrari og viðmælanlegri en áður. Vöðvatonus virðist allur mjög aukinn og lyfjum því breytt í samræmi við það: T. Artane 5 mg. X 2,

28.2. ’69 (Þ.J.) Líðan svipuð undanfarna daga. Sjúklingur er allvel skýr á milli en órólegur og ruglaður aðra tímana. Lyf T. Artane 5 mg. X 3, annað óbreitt.5.3.’69 (Þ.J.) Líðan óbreitt. Lyf óbreitt.

7.3. ’69 (Þ.J.) Eins og áður skiptast á tímabili þar sem sjúkl. er skýr til viðtals á sinn hátt, en er svo aftur ruglaður og viðskotaillur á milli. Alláberandi er nú bjúgur á fótum, sjúklingur er hlustaður og kemur fram dálítil ´regla á hjartslætti, aftur á móti heyrast ekki slímhljóð neðan til í lungum. Tekið er því leitað ráða til hjartasérfræðings um meðferð á því.

10.3.69’ (69) Undanfarna daga hefur sjúklingur verið að öllu leyti andlega og líkamlega veikari. Hann er bæði sljór og ruglaður, en auk þess máttfarinn. Þar sem ChlorpromazineVirðist ekki gefa neinn varanlegan bata er ákveðið að hætta því lyfi í bili, en reyna annað. Lyfjum er því breytt á eftirfarandi hátt: Sep. Chlorpromazine, T. Buronil mg 25+25+100 vesp., annað óbreytt.
20.3.’69 (Þ.J.) Nú undanfarna daga hefir sjúkl. aftur orðið líkamlega hressari, er nú meira á ferðinni, sækir mikið í að brölta fram úr rúmi og út á ganga. Geðhorf óbreytt.

26.3.’69 (69) Sjúkl. er nú líkamlega allhress, en andleg líðan hefir lítið breyst upp á síðkastið. Með köflum hefir gengið illa að fá hann til að taka lyf, og hefur hann því fengið lyfin með innspýtingu.

30.3.’69 (Þ.J.) Sjúkl. er að vissu leyti við betri líðan nú síðustu dagana, tekur lyf möglunarlaust, er allur mildari í viðmóti og meðgjörlegri.Lyf: T. Buronil 25 mg. X3+100vesp. Annað óbreytt.2.

4.’69 (Þ.J.) Líðan óbreytt ,sjúklingur er enn algjörlega confus. Lyf óbreytt.

5.4.’69 (Þ.J.) Undanfarna 2 daga hefir sjúkling aftur liðið betur, hann er skýrari bæði í hugsun og eðlilegri í öllu fasi. Nú í morgun er hægt að halda uppi við hann allskynsamlegum samræðum um stund, og virðist hann fullkomlega áttaður á stund og stað. Lyf óbreytt.12.4.’69 (Þ.J.) Upp á síðkastið hefir lítil breyting orðið á líðan sjúklings önnur en sú að hann er sérstaklega illskeyttur á morgnana, æstur og erfitt að sefa hann.Lyf: Cont. Buronil 50 mg. + 50mg.+25 mg. +100mg. Vesp.

17.4.’69(Þ.J.) Síðasta lyfjahækkun virðist hafa heldur góð áhrif á sjúkling, hann er rólegri en nokkuð ber á paranoiskum viðbrögðum. Þykir því rétt að herða enn á lyfjagjöf á eftirviðbrögðum. Þykir því rétt að herja enn á lyfjagjöf á eftirfarandi hátt: T. Buronil 50 mg. X+100 vesp., annað óbreytt.

29.4.’69(Þ.J.) Undanfarin hálfan mánuð hefir sjúkl. greinilega farið fram. Þennan tíma hefir ekki borið á neinum æsingi, hann er viðráðanlegri, sefur betur um nætur, jafnvel dálítið heillegri í framkomu, enda þótt hann ennþá vilji vera annaðhvort mjög fáklæddur eða allsnakinn. Hann virðist nú ekki lengur beint confus, getur haldið uppi samræðum á svipaðan hátt og vitað er að hann hefur gert til lengri tíma, fer með stökur og ljóð. Blóðrannsókn leiðir í ljós að um dálítinn folisýruskort er að ræða, og fær sjúkl. því framvegis t. Acidi folici 2x3 á dag.

6.5.’69 (69) Rannsóknir hafa leitt í ljós að sjúkl. skortir bæði folinsýru og B12 vítamína. Blóðmynd bendir þó að öðru leyti ekki á macroytera-anemíu, en til þess að ganga algjörlega skugga um það er í dag gerð mergstunga hjá súkl. Beðið verður eftir niðurstöðum hennar um tilheyrandi lyfjagjöf.Undanfarna viku hefir sjúklingi liðið mun betur, er nú að öllu leyti skýrari og heillegri. Hann er nú svo til æsingalaus, klæðist fötum meir en áður. Dálítillar syfju hefur gætt undanfarna daga, og er lyfjum því breytt á eftirfarandi hátt: T. Buronil 25 +25+50+100mg. vesp.

10.5.’69(Þ.J.) Eftir að lyfjameðferð var létt fór sjúklingur aftur að verða dálítið órólegri og viðskotaverri. Paranoisk viðbrögð hafa komið fram og er sjúkl. allillskeyttur í viðskiptum sínum við hjúkrunarkonur. Lyfjum verður því breytt aftur á eftirfarandi hátt:T. Buronil 25+50+150mg. vesp.

19.5.’69(Þ.J.) Við hækkaða lyfjagjöf virðist sjúkl. líða betur, hann sefur rólega, ekki eins viðskotaillur, er meðgjörlegri að öllu leyti. Niðurstöður af mergstungu liggja fyrir og eru ekki afgerandi, gætu þó bent á byrjandi macrocytera-anemíu. Í ráði er því að taka aftur blóð til rannsóknar á B12 og folinsýru, en að því loknu byrja að gefa sjúkl. B12 í stórum Skömmtum og folinsýru.

25.5.’69(Þ.J.) Um kl. 11.00 í morgun var sjúkl. á stjái hér á ganginum, varð þá fótaskortur og féll með höfuðið aftanvert á dyrakarm. Myndaðist þar 2 ½ cm langur skurður, var sjúkl. Þá fluttur á Slysavarðstofu og sárið saumað saman. Ekki varð mikið um þetta áfall, en þegar verið var að búa um hann aftur í rúminu að lokinni aðgerð kvartaði hann um kuldaskjálfta. Nú undir kvöldið hækkaði hiti hjá sjúkl., var með 38.5 kl. 7.30 en 39.4 kl. 9.30 í kvöld. Sjúkl. er rannsakaður, hjartahljóð er eðlilegt, lungnahljóð erfitt að heyra greinlega vegna vöðvaskjálfta, öndun 24 á mín. Púls 96/mín. Hann er mjög heitur og sveittur, auðsýnilega dasaður af hitanum, kvartar ekki. Þar sem sjúkl. hefir stríplast allmikið undanfarið þrátt fyrir nákvæma pössun þykir ekki ólíklegt að hér sé um einhverja lungnainfection að ræða. Er því ákveðið að gefa honum Penicillin, fyrst um sinn 1 millj. Ein. á 4ra stunda fresti.

26.5.’69 (Þ.J) Sjúkl. er nú mun hressari, hiti aðeins 37.8. Hann er dálítið máttfarinn en líður að öðru leiti ekki illa. Lyf óbreytt.

27.5.’69 (Þ.J.) Sjúkl. er nú hitalaus er talinn nægilrga hress til þess að flytja hann á röngtendeild til lungnamyndunar. Kemur til þess að flytja hann á röngtendeild til lungnamyndunar. Kemur þá í ljós lungnabólga á báðum lungum neðanverðu. Lyf óbreytt.

2.6.’69(Þ.J.) Líðan að öllu leiti betri, bæði andleg og líkamleg. Ber sig nú með aðstoð eins og fyrir veikindin, nærist, sefur og hvílist vel. Lyf óbreytt. Control-mynd af lungum eftir 1-2 daga.

5.6.’69 (Þ.J) Control-mynd af lungum sýnir enn svo til óbreyttan process. L’iðan sjúklings a’ öðru leyti batnandi. Lyf óbreytt.

12.6.’69 (Þ.J.) Óbreytt líðan. Lyf óbreytt. 19.6.’69 (Þ.J.) Control mynd af lungum sýnir svo til óbreytt ástand, þó virðist bólgan nú minni v.megin. Lyf óbreytt.

3.7.’69 (M.S.) Sjúkl. hefur verið þægilegur í meðferðum að undanförnu en dementtian fer sízt minnkandi.11.7.’69 (M.Sk.) Geðrænt ástand óbreytt. Síðustu rannsóknir sýna að sjúkl. hefur þann 23.5. haft 120 PML pr. Liter af B12 vitamini sem er lítið eitt undir nerði normal-mörkum, en þ. 24.6. 80 MICROG/L af Folinsýrugjöf sem er langt yfir efri normalmörkum. Verður því Folinsýrugjöf hætt í bráð en sennilega er réttast að gefa sjúkl. 1 eða fleiri Cycobemin inj. Mergstunga bendir þó tæpast til þess að hér sé um anema perniciosu að ræða og Retyculocytar voru aðeins 8 pro mill 24.6. þá var hemoglobin 12.4 g. %, hafði hækkað, sökk var 4 mm. hafði lækkað úr 12, hv.blk. 7900 og piff talning nánast eðlileg . Röngtenrannsókn 19.6. sýndi að enn var talsv. Infilttration svo og blóðstatus.

23.7.’69(M.Sk.) Ný lungnamynd var tekin 17.7. s.l. og kom í ljós að processing í h. Lunga hefur hreinsað sig mjög vel og aðeins eru eftir fibrotisk atelectatisk strik basalat í lobus medius. Ítarleg blóðrannsókn var og gerð þennan dag (sjá rannsóknarblað) og kom í ljós að hemoglobin er enn 11.5g.% en blóðmynd að öðru leiti nánast eðlileg, st.blóðk. og hemogl. Innihald eðlil. Og Cycohemin og Folinsýsru –meðferðin virðast lítið gera.

1.8.’69(N.Sk.) Sjúkl. hefur nú fengið járntöflur undanfarið og er hemoglobin nú 12,6, g%. Andlegt og líkamlegt ástand svipað og áður. Stundum hefur komið mikið slen og máttleysi yfir sjúkl., en það stendur sjaldnast lengur en 1-2 daga, og hefur ekkert nýtt athugavert fundizt við líkamlegt heilsufar.

15.8.’69 (Þ.J.) Engin frávik frá því sem undanfarið hefur verið, lyf óbreytt.

30.8.’69 (Þ.J.) Engin frávik frá því sem undanfarið hefur verið lyf óbreytt.10.9.’60(Þ.J) Líðan óbreytt. Rétt þykir að athuga að nýju Folinsýru og B12 búskap sjúkl. , og er því sýni sent til rannsóknar. Lyf óbreytt.

12.10. ’69 (Þ.J.) Rannsóknir á folinsýru og B12 búskap sjúklings voru innan eðlielegra vikmarka. Heilsufar sjúklings er í engu frábrugðið því, sem verðir hefur undanfarið mánuði, virðast hér allt að því hátt bundnar sveiflur á ferðinni, drungi og mikill svefn 3-4 daga, eftir það róleg vaka með hægt vaxandi sljóleika, þá kemur tímabil þar sem sjúklingur sefur lítið í eina til tvær nætur, er þá mikið á ferðinni orðljótur og hyggst þá alla ofsækja sig. Eftir það kemur nokkuð eðlilegt ástand eins og áður er lýst án nokkura Lyf óbreytt.

31.12.’69 (Þ.J) S.l. 3mánuði hefur ekkert sérstkat borið til tíðinda um heilsufar sjúklings, og nú um þessi áramót er ástand hans svipað og hér að framan er lýst. Lyf óbreytt.

20.3.’70 (Þ.J.) Líðan hefur verið mjög svipuð undanfarna mánuði eins og áður er lýst, með nokkuð háttbundnum sveiflum. Ennþá er af og til hægt aðð tala við hann um stundarsakir og heldur hann þá þræði að mestu, jafnvel þó óljóst sé með köflum. Lyf óbreytt.

17.7.’70(Þ.J.) Líðan hefur til skamms tíma verið svipuð að öllu leyti, mjög litlar breytingar orðið á geðheilsu. Undanfarna daga virðist sjúklingi hafa verið dálitið þungt um andadrátt, og var því kvödd til medicinsk consultation. Gerð er mjög alhliða rannsókn, þ.á.m. rannsókn á folinsýru, B12, tyrosin-mæling, ásamt lungna – og hjartamynd og hjartalínuriti. Allar rannsóknir eru eðlilegar, nema hjartalínurit, sem leiðir í ljós hæga fibrillato atriorum. Er sjúkl. Þá Digitalisseraður um tíma, en lyf að öðru leyti óbreytt.

15.8.’70 (Þ.J) Áðurnefnd gangtruflun á hjarta lagaðist á skömmum tíma við Digoxin-gjöf og starfar hjarta hans nú alveg eðlilega. Líðan að öðru leiti svipuð, Þó hefur sjúklingur verið í ´rólegra lagi nú undanfarna 3 daga. Ákveðið er því að auka lyfjagjöf dálítið:T. Buronil 25 mg. x+375mg. vesp.

10.9.’70 (Þ.J.) Síðustu vikur hefur sjúkl. verið í góðu formi, verið dálítið á ferðinni, dálítið viðmælandi með köflum, gefur verði og umhverfi gætur. Í morgun var mjög sólríkt og fagurt veður er ég kom hér á deildina, stóð þá meistarinn hér við gang gluggann, horfði mót suðurausturfjöllunum, tærum og ferskum í sólarljómanum, og hneigði sig fyrir þessu útsýni í andakt. Honum hefur verið boðið að hafa hjá sér áhöld til þess að teikna eða mála, en hafnar því. Lyf óbreytt.

15.11.’70 (Þ.J) Í dag er meistarinn 85 ára gamall. Nokkrir vinir hans komu í heimsókn og dvöldu hjá honum í u.þ.b. klukkustund . Að sögn þeirra virtist hann njóta þessara heimsóknar og hélt uppi samræðum við þá allan þennan tíma, og voru þeir ánægðir með það sem út úr því kom, þegar tillit er tekið til allra aðstæðna, enda allir nákunnugir sjúklingi. Lyf óbreytt.

31.12.’70 (Þ.J) Sjúkl. hefur nú dvalið hér undir það 2 ár, og hefir heilsu hans smá saman hrakað þennan tíma. Fullvíst er að hann þekkir nú hvorki lækna né hjúkrunarfólk með nafni, en ber góð kennsl á starfsfólkið að öðru leiti. Ekkert sérstakt hefur borið út af heilsu hans undanfarnar vikur. Lyf óbreitt.

15.3.’71 (Þ.J) Frá því um s.l. áramót hefur ekkert sérstakt borið út af með heilsu sjúklings, líkamskraftar hans endast furðanlega, og getur hann því óstuddur og á allrar hjálpar borið sig hér um gangana. Sveiflur hans eru periodiskar eins og áður. Sljóleiki virðist smáaukast, þó hægt fari, og koma ennþá dálítil, stutt en skýr tímabil inn á milli.Lyf óbreytt.

25. 6.’71 (Þ.J.) Í stórum dráttum hefur heilsufar lítið breytzt nú undanfarna mánuði, þó hallar alltaf undan fæti, þó hægt fari. Blóðstatus og aðrar rannsóknir hafa engum breytingum tekið nú upp á síðkastið. Lyf óbreytt.

30.9.’71(Þ.J) Ástand hefur ekki tekið stórsígum breytingum nú undanfarna 3 mánuði, enda þótt auðsýnilega sé um hæga en ákveðan hrörnun að ræða. Eins og áður kom hér fram, hefur meistarinn ekki sýnt neina tilburði til myndlistar, eftir a’ hann kom hingað inn á deildina, jafnan hafnað því ef honum hefur verið boðin tæki til þess. Hins vegar bar svo til í morgun er litið var inn til hans að hann lá í rúmi sínu í djúpum svefni, h. Framhandleggur reistur upp til hálfs, en fram úr hægri sem orðin er grönn og sinaber, hékk gulleitur blýantur, oddbrotinn. Þetta var eftirminnileg sjón þeim sem horfðu á. Lyf óbreytt.

30.12.’71 (Þ.J) Eins og framan getur hallar alltaf undanfæri, enda þótt mjög hægt fari. Sjúkl. hefur nú litla fótaferð, fer þó alltaf eitthvað fram úr rúmi á hverjum degi, ekki þó alltaf út úr stofu sinni. Lyf óbreytt.

26.2.’72 (Þ.J.) Snemma í morgun þegar litið var inn til sjúklings virtist hann í djúpum svefni, og þegar farið var að gera honum til góða, kom í ljós að hann var meðvitundarlaus og lamaður v. Megin. Þótti þá ´synt að um heilablóðfall var að ræða. Þegar leið að kveldi fór hiti að hækka, var sjúkl. þá gefið Penbritin í innspýtingum, 250 mg.x 4, en auk þess glucosuupplausn í æð.

12.4.’72(Þ.J) Sjúkl. er búinn að fá bólgu í bæði lungu, hefir háan hita og er auðsýnilega langt leiddur. Lyf: Inj. Streptomycini 1 gr. X 2, annað óbreytt.13.4.’72 (Þ.J) Sjúkl. hefur hrakað mjög nú sl. Sólarhring, og strax í morgun var auðséð að hverju fór. Hann lézt nú í kvöld, laust fyrir kl.20.00.


Hér á eftir er sjúkraskýrslan þegar afi er lagður inn á Landspítalann 28. janúar 1969.
______________________________________________________

LANDSPÍATALINN
HANDLÆKNISDEILD
____________

Sjúklingur

Jóhannes Sveinsson KjarvalAldur f. 5.11 1885Heimili Sigtún 7. RvíkKom á spítalann 28.1. ’69

Fór 18.2 ’69 á geðdeild Bsp.Kom vegnaSjúkdómsgreining spítalans Confusio mentis (rugl, óráð. Þýðing geðlæknis)

Svo er listi yfir rannsóknir sem voru gerðar, blóðþrýstingur og annað sem ég sleppi.

Undirskrifað 22.2 ’69
Snorri Hallgrímsson
spítalalæknir

Svo eru færslur sem gerðar voru á Landspítalanum hægðir og annað sem skiptir ekki máli í þessu sambandi.

Daginn sem hann er færður af Landspítalanum á geðdeild Borgarspítalans18. 2 ’69 er þessi færsla:

83 ára gamall listmálari, sem hefir hrörnað mjög bæði psychiskt og fysiskt á undanförnum mánuðum. Hann var við komuna sérstaklega mjög magur, frekar þurr og áberandi ruglaður. Var ekki almennilega klár á stað og stundu. Hann kvartaði um hægðatregðu og óþægindi við að hafa hægðir og þótti því ekki ólíklegt, að um maligna laesion í tractus gæti verið að ræða, sérstaklega m.t.t þess, hve mikið hann hefir lagt af undanfarið. Skoðun hefir þó ekki leitt neitt slíkt í ljós og finnst ekkert sem bendir til malignitets. Fysiskt ástand hefir heldur batnað meðan hann hefir verið hér á deildinni, hann hefir borðað all sæmilega og þarmafunctionhafa verið nokkuð eðlileg. Samkvæmt niðurstöðu af psychiatriskri consultation (K.S.), hefir sj. fengið chlorpromazin 150 mg. Á dag með nokkrum árangri, en hefir þó öðru hvoru veriðó rólegur, viljað fara út og verið mjög ruglaður. Þess á milli hefir hann verið rólegur og sæmilega skýr og hefir þá þekkt fólk í kringum sig. Síðustu dagana hefir hann fengið 200 mg. Á dag og auk þess artaen 6 mg. daglega. Enfremur B-combin og ascorbinsýru og mebumal natríum 20 cg. undir svefn. Síðustu dagana hefir nokkuð borið á bjúgi á fótum.Sj. Er í þörf fyrir pyschiatriska meðferð og er því útvegað pláss fyrir hann á Borgarspítala, geðdeild. Hann fer þangað í dag.

__________________________________________________________

Þetta er sem sagt skýrslan frá Landspítalanum. Takið eftir hvað mikið er fjallað um holdafar afa og að honum hafi farið fram þennan tíma sem hann var á Landspítalanum. Þýðir aðeins eitt, afi var hættur að borða almennilega áður en að hann var lagður inn.

Og ég spyr getur þú verið í nokkrum vafa að hann afi minn Jóhannes Sveinsson Kjarval listmálari var óhæfur um að gefa nærri allt sitt í burtu rúmlega tveimur mánuðum áður en þessi skýrsla var skrifuð. Fyrir utan að ekkert er til frá honum um þann vilja.